Tuesday, 27 November 2007

Mont.

Já...Þeir sem sáu í gegnum Heyðingjann í síðustu færslu, til hamingju. Heyðingjanum fannst bara erindi í það að monta sig í að horfa á fréttir...og þegar hann segir horfa þá meinar hann að einhver skildi við sjónvarpið á fréttum og Heyðingjinn annað hvort fann ekki fjarstýringuna eða nennti ekki að ná í hana.

Allavega var helgin fín. samt aftur mjög bisí. Á föstudag tóku Heyðinginn og Gýtrás hitting á Old Street, gamli góði Reliance stóð fyrir sínu...en þeim fannst soldið kalt þannig að stefnan var 2 mínútur austur á Legion í sófana. við ræddum allt og ekkert og stálum tveim bjórum.....Þeir héldu að fólkið sem áttu bjórinn væru farinn þannig að þeir hirtu þá bara. Svo allan tímann sem þeir sötra á froðunni horfa 6 sterkbyggðir karlmenn grunsamlega á þá...þangað til að 3 sopar eru eftir....þá kemur minnsti gaurinn og segir: Hello mate, bla bla bla bla bla bla, hann talaði við Gýtrás og var einn sá kurteisasti og ekkert að pirra sig á því að einhver tók bjórinn. þannig að félagarnir splæstu bara á bjór fyrir litlu stóru strákana.

Laugardagur var unnin og síðan tekin í bjór og mat með Mesatgríg(afmælisbarnið), Mútgref, Trónshútt, Rófklerfa, Klúgfrón, og Glúférmút (Ingi). Fínt að fara í svona í rólega drykkju með góðu fólki. EN.....Heyðinginn og Klúgfrón enduðu á Kebabstaðnum Marathon í Camden til ca 4. fínt það.

Sunnudagur var þynnka....NOT, vaknaði um 9 til þess að fara í sturtu og drulla mér niðrí john Lewis til þess að kaupa afmælisgjöf á yfirmanninn. Það heppnaðist og þá þurfti ég að snara mér austur á Upton Park í Director Suit-una að horfa á West Ham-Tottenham....fínn leikur og frír bjór. Þaðan var það bara barnafmæli með áfengi við hönd, læti en samt fínt.

Mánudagur byrjaði á lestarferð til Sidcup til að sjá Þursann dansa af sér rassinn, og hann varð eftir í Shitcuppppp. Næst var unnið og síðan tók við matarboð á Bethnal hjá Gýtrás, Flórsnón, Rjetgvenda...sennilega besti matur sem Heyðinginn hefur sett innan varir sínar. Rauðvínsdrykkja er ávallt góð.

Þriðjudagur er nú og þa

Wednesday, 21 November 2007

present time.

Já tímarnir eru skrítnir. Gordon Brown og félögum fannst ekkert að því að senda trúnaðarmáls-upplýsingar á venjulegum geisladisk, án varnarforrits til að fela innihaldið, í póstinn...og hann týndist. Þetta eru jú persónulegar upplýsingar fjölda Breta og þarna getur massíft ID crisis komist í gang.

Englendingar eru dottnir úr EM áður en keppnin byrjaði...SM er hálfviti...og Lampard.

Annars átti Fúntsépi afmæli um daginn, einsog þið vitið, og rúmlega viku seinna ákveður hennar alveg eins helmingur að eiga afmæli...hann Téltranbur (Jóhann Rúnar). gaman það.
Svo 3 dögum seinna verður enn eitt afmælið..hún Júrétva (Freydís)...sem fylgir einmitt sama vinahóp og hitt afmælið. Súveppnúr (Jökull) eiginkærasti Júrétva, Téltranbur, Fúntsépi, Mýfpútt (Droplaug), Róprénám (Friðrik), og Glávbúrma prýða þennan ágæta drykkjufélagsskap.

Það er einmitt eitthvað Heyðinginn...en sennilega eru það hinir. Leti og rigning lá yfir Heyðingjanum og London á Mánudag og Þriðjudag (mætti halda að þeir væru bræður) og lítið fór í verk þá daga. Annað en að fara í vinnuna og vera metnaðarlaus og gera grín að öllu og öllum sem fóru þar framhjá. (Ég vil taka það fram að hvorki Heyðinginn né London eru bræður).

Þursinn er að kófsvitna hérna við það að reyna vera fyndinn, situr í hinni tölvunni og msn-ar Heyðingjanum skilaboð sem ríma við kú. Þursinn á margt eftir ólært, þó ekki dans.

Annars er magnað hvað hlutir geta setið á fáranlegum stað lengi án þess að maður taki þá og hendi iinní skáp. Ryksugan er búna hanga núna á miðju stofu/eldhúsgólfi í ca viku og það er bara ekkert mál. lítið mál að stíga yfir þetta kraftlausa viðrini, og lítið mál að henda inní skáp ef einhver kemur óvænt....sem hefur tvisvar gerst á tveim árum, sem þýðir að það er ca ein önnur þannig þangað til næsta sept. Það má segja að Heyðinginn lifir á brúninni í meiru en bara bensíndrykkju.

Kveð.
2 £ Á kassan og friður út
das Heiding (ekki töff á þýsku)

Tuesday, 20 November 2007

Úti er ævintýri

það er margt búið að gerast.

og hérna byrjar það. Vinnan er góð, alltaf að hitta fleiri geðveika og fatta að ég verð geðveikari sjálfur með hverjum degi sem líður. Ekki einu sinni Heyðinginn er óhultur stórborgara geðsýkinni.

Síðan síðast er byrjað að leka loftið á baðherberginu, Heyðinginn ætlaði ekki að trúa því en jújú, það dropar yfir baðkarinu, smá heppni í óheppni en þó leiðinlegt. Manneskjan fyrir ofan borgar allt saman...Heyðinginn lendir bara í leiðindunum sem fylgja.

Bortalli kom og fór síðustu helgi, hann drakk, reykti, kyssti, svaf og keypti. góð helgi þar og þá sérstaklega sunnudagurinn.....bara ganni. En Bortalli stakk Heyðingjann af með Glávbúrma á Beirut á laugardaginn var. Heyðinginn hmpf-aði bara og fór heim að hitta Þursann. Þar var ákveðið að hitta Glóntrjó (Hlynur) á pöbba rölti í Camden. Svo fór að Þursinn var þreyttur og ákvað að leggja sig í hálftíma, Þursinn kom ekki meira við sögu um kveldið. En piltarnir fóru á gott pöbbarölt og buðu Bortalla og Glávbúrma velkomna að tónleikum loknum. Stoppið var stutt enda allir þreyttir raddlausir og svangir. Allavega fóru Heyðinginn og Bortalli beint á beygluna og tóku 5 laxabeyglur, eina til að borða á leiðinni og eina heima og eina fyrir sofandi Þursa.

EN HÉR KOMA FRÉTTIRNAR......HEYÐINGINN REYKIR EKKI LENGUR. og það eru 3 vikur síðan...drukkið nóg síðan þannig að, þetta er búið. HEYÐINGINN VILL FÁ HAMINGJUÓSKIR Í SKRIFLEGU FORMI SENDA Á BRESKA HEIMILISFANGIÐ.


Jólin eru að koma, og svo má ekki gleyma að nóvember er að klárast.

Þessi helgi var ansi skrítinn, Heyðinginn stoppaði ekki í korter alla helgi. Föstudagurinn var byrjaður á vinnu einsog vanalega, nema að það var hljómsveitaræfing beint eftir vinnu....jújú Heyðinginn þykist glamra á strengi, allavega þá endaði það í rólegum bjórum og heimferð um miðnætti eða eitthvað, man ekki nákvæmlega. Svo vaknar Heyðinginn á laugardegi og drífur sig í vinnuna. Þar byrjar vel, fyrsta dama fyrsta sala. vúhú, allavega endaði laugardags vinnudagur vel og þaðan var farið í afmælisboð til Fúntsépa. hún er eldri. það endaði í einhverju dansiballi á Old Street einsog vanalega. Sunnudagur byrjaði um hálf ellefu til þess að fara í fótbolta í kuldanum, Heyðinginn vann og skoraði meira segja nokkur stykki....Heyðinginn skorar aldrei í fótbolta. þaðann fóru dude-arnir beint á pöbbinn og fengu sér öl og annan. Heyðinginn hvarf svo neðanjarðar og viti menn...galdur...Síminn hringir. eitt besta móment lífsins. Heyðinginn dreif sig heim með sólheima glottið og fór í sturtu til að fríska sig fyrir spilaleikana. Arcade Fire voru nebbla að troða upp og buðu Heyðingjanum frítt á tónleikana gegn greiðslu. Þeir buðu nokkrum öðrum líka.
Alalvega var Heyðinginn að fara með Mútgref, Klúgfrón, Múfsnugg, Svasnoppa, Trónshútt (Elín), Úmgópur (Helga), en því miður komst Mesatgríg ekki. Hans var saknað. KISS KISS
Góðir Spilaleikir þessir.
Heyðinginn drakk nokkra gulllitaða og kom heim alveg búinn á því...hann eyddi mánudeginum með harðsperrur þreytu raddleysi og yfirvegun.


það er kominn myndasíða í boði El Þurso.
http://www.flickr.com/photos/passivelunatics/
við erum hér.

þangað til næst.
Heyðinginn kveður með 2 pundum á kassan og friðarmerki út.

Thursday, 18 October 2007

In Rainbows

.....þessi nýja plata Radiohead er frekar góð, Heyðinginn er á öðru lagi og hann dýrkar hana. hún er vel frábrugðin öllu sem hann bjóst við, progressive á þeirra hátt samt.
þessi hljómsveit er mögnuð, Heyðinginn vill þakka EMI fyrir það að þeir eru ekki lengur að þrýsta á þá með deadlines og einhver læti í gangi....ánægður að þeir fái að taka sinn tíma.

hægt er að nálgast plötuna á www.radiohead.com/deadairspace þar er frétt um að platan er kominn út og smelltu bara á In Rainbows linkinn og þú ræður hvað þú borgar fyrir hana, fyrir utan 45 pence í krítarkorta notkun.
Radiohead for government

Heyðinginn kveður sáttur

Wednesday, 10 October 2007

KNIFE-WRENCH

hver fílar ekki scrubs? Heyðinginn gæti endalaust horft á þetta.

Heyðinginn spilaði í lottói í kveld, vann ekki----en hann var með fyrstu tvær tölurnar réttar svo þetta var nett hjartaáfall...það er allt í lagi - tek þetta næst.

Vinnan í dag var góð. byrjaði vel, Heyðinginn tók 70 pund á fyrstu 90 mínútunum, svo var bara ekkert eftir það. þannig að Heyðinginn ætlaði heim, en hann vildi stoppa eina stelpu í viðbót og viti menn...sala-50 pund--kláraði það og steig út á næstu stelpu og 30 pund þar.....80 pund á 5 mínútum er ekki slæmt meira svona.
yfirmaður Heyðingjans fær að vísu skerf að þessum 150 pundum í dag en það eru samt 100 pund í vasan hjá mér í dag.

Það sem Heyðinginn tók sérstaklega eftir á Íslandi núna síðast var....SPRENGJUHÖLLIN --hún er leiðinleg nema þetta sóló verk gítarleikarans, annars er þetta jafn gleymanlegt og nafn sem Heyðinginn heyrir klukkan 5 að laugardagsmorgni í miðbæ Reykjavíkur. Svo vantar algjörlega pöbb á íslandi...ódýran. Bjórinn þarf ekki að kosta 650 krónur þó að aðrir rukki það, hvernig væri að vera með hverfispöbb sem rukkar 300 á sunnudögum til fimmtudags og 400 um helgar. það er of dýrt að detta inná pöbb í nokkra kalda með félaga og tala um ekkert......sem er eitt það besta í bretlandi. Svo kemur þetta hornauga frá 29 ára gömlum stelpum sem eiga kókaínhelgarnar að baki sér. nei..þetta var ljótt. SAMT Heyðinginn vill fá bresku pöbba stemninguna á ísland....I love it

Juha kemur til London á morgun (ekki búið til nafn, hann er finnskur og annað en íslenskt er ekki skírt), en Heyðinginn og Þursinn ætla í mat (heldur hann) til Gýtrás og Plórsnón...því miður verður Rjetgvend að passa en þau 3 búa saman.

Heyðinginn notaði annars í fyrsta sinn vöruna sem hann selur...hann fílar þetta, sáttur með klippinguna og sérstaklega nuddið--mega róandi, næstum því kynæsandi. Og Gýtrás verður fyrsti vinurinn til að nota stofuna sem ég vinn hjá...spennandi að heyra hvað hann segir.

Þetta er gott í bili.
Kveð Heyðinginn

Tuesday, 9 October 2007

Les þetta einhver??

Jæja, nú er Heyðinginn byrjaður að vinna....og þvílík vinna. Ég stend útá götu að selja afslátt í klippingu, það gengur þokkalega og er frekar gaman. Dagurinn felst í því að reyna við stelpur og hirða peningana þeirra, og and reyna að komast hjá "crazies in camden".
"crazies in camden" kemur fyrir þegar Heyðinginn vinnur í camden, hérna koma nokkrar dæmisögur:

miðaldra svört kona klædd öllum litum í litarófinu og einhverju fleiru stoppaði fyrir framan Heyðingjann og segir: You can´t sell me nothing, Do you want to sex in my vagina for free? Heyðingjann brá ekki neitt og sagði: No, Im alright. Þá spyr crazy: Am I the wrong color? Heyðinginn brosir bara og segir: No I have a girlfriend.
Hún hélt áfram leið sinni einsog ekkert hefði gerst. BTW þá er hún alltaf með lítinn koll með sér sem hún allt í einu sest á. frekar skemmtileg manneskja.

Heimilislaus róni kemur að helga með einhvern pappír og segir: excuse me can you see the 4 numbers there, its so supposed be my pin number but it doesn´t work. Heyðinginn sagði honum tölurnar og hann fó í hraðbankann og tók út pening. Leiðinleg saga en merkilegt að heimilislausir séu með debitkort...er þetta uppsafnað klink eða heitur fengur?

Ung múslima stelpa í venjulegum fötum labbar framhjá Heyðingjanum og allt virðist í feldu þangað til að hún snýr sér við og horfir á Heyðingjann einsog hann hafi sagt eitthvað við hana. Þegar hún kemur nær þá sér Heyðinginn að hérna er ekki allt með felldu, hún er virkilega sambrýnd með grófari skeggrót en ég og gleymdi að þurrka sér um munninn síðast þegar hún borðaði. Hún kemur að Heyðingjanum og segir: I wrote to Chris H-eitthvað a jewish intellectual who is very anti muslim, I told him what I thought of him. Then the other day I see him coming out of subway with a sandwich grinning in my direction in a patronizing way. Svo kom þögn í 2 mínútur þar sem Heyðinginn reyndi að sjá í augun hennar en gleraugun voru svo kámug að það var ekki sjéns, svo loks sagði Heyðinginn: Im gonna get back to work.

Fleiri sögur væntanlegar.

Annars bjuggu hérna þrjú lítil kríli og þegar þau urðu heimilisvön þá sendu Þursinn og Heyðinginn þau áfram. Enn þau Rjetgvend, Gýtrás (Benni), og Plórsnón (Ellen) voru hérna villt á vegum breskrar pappírsvinnu. Allt það gekk vel og fylleríið þá sérstaklega.
Annars er hann Glávbúrma (Baldvin) fluttur út og ætlar að dvelja í Lundúnum næstu árin, svo er maður bara að safna eldivið fyrir veturinn.

gott update,
Kveð Heyðinginn

Monday, 3 September 2007

'iSLAND

takk fyrir síðast, er búinn að vera á internets núna í tæpa 3 mánuði eða eitthvað. Ég er búinn að vera í tælensku fangelsi að slást við kóbraslöngur fyrir fuglamat. Það kom upp smá misskilningur um afstöðu mína til kommúnista og mér var skellt í steininn.

Annars lítið búið að gerast....samt ekki, bara hef verið latur að blogga. Ísland var fínt...hitti flesta og gekk allt ágætlega, var að vinna og drekka bjór þar á milli. Ég náði ekki að redda atvinnuleyfi ti USA alveg strax en ég er viss um að þetta tekst. Núna er ég að leita að vinnu hérna í London, og ábendingar eru velkomnar.

ég verð duglegri við þetta á næstunni.
Takk fyrir í kveld.
Góða nótt.
Heyðinginn

Wednesday, 11 July 2007

Beiskt bragð

Það er allt á uppleið þessa dagana nema breska pundið...sem er gott. Ég er búinn að fá vinnu á Íslandi á Grensásvegi hjá Ísteka, ég er ekki alveg viss hvað ég á að vera að gera en það er eitthvað með merarblóði (ekki djók).
Í gær var elduð pezza, Þursinn reddaði deiginu (sem er ógeðslega gott að borða hrátt) og Heyðinginn setti ofaná deigið...sem er miklu erfiðara og flóknara en að gera deig......sem er í raun fyrir byrjendur. Pizzan var góð, ég þarf ekki að panta pizzu lengur, maður er fljótari að búa hana til en að panta.

Die Hard 4.0 er mögnuð, verður sokdið ýkt á köflum en samt gott skemmtanagildi og fínasti söguþráður. Scrubs er besti þáttur í heimi og ég er að deyja úr spenningi að sjá Simpson myndina, ég ætla að kaupa mér miða í forsölu og sjá hana áður en ég kem til Íslands...einhver memm???

Um helgina ætla Heyðinginn og Þursaruslahrúgan (sem er sofandi hliðiná mér) ti Brighton, hún á einhverja vinkonu þar sem við ætlum kannski að hitta eða eitthvað.....úr London er gott. Helgina eftir það er SURFING....við ætlum á Croyde Bay aftur að surfa, það er alltof gaman. Tjald, einnota grill, kótilettur, hellingur af víni....allskonar víni, og góðir vinir.
Eftir það tekur við merarblóð á íslandi.

Lífið er alltaf................................................

Wednesday, 27 June 2007

Klukkan slær

er ennþá til tími ef það er ekki sól eða tungl í okkar heimi? alltaf grátt.

Mér líður þannig í dag, það er fátt jafn gaman og að bíða eftir sendingu, See tickets eru á leiðinni heim til mín með miða....þeir koma á milli 9-5. Af hverju geta þeir ekki sagt fyrir eða eftir hádeg eða hringt klukkutíma áður en þeir koma. kannski er þetta business plan sem einhver má eiga fyrir mér.

Annars er Heyðinginn kominn aftur til London, og honum er ekki skemmt á sínum fyrsta degi. Hann mun batna þar sem Heyðinginn ætlaði að hitta 0110101110 (Hlyn) í kollu seinna í kveld. það er margt að gerast um helgina. Foreldrar Heyðingjans mæta til London á laugardaginn, þau Guð og Guð...það er erfitt að rífast við svoleiðis foreldra---ekki djók, þau heita bæði Guð og ég er Heyðingi. Mútgrefur á víst að vera með afmælis/innflutningspartí á laugardaginn svo er eitthvað annað innflutningspartí á föstudaginn, fyrir utan það að Þursinn er að sýna alla helgina í skólanum sínum.
En auðvitað er allt þetta surprise partí fyrir endurkomu Heyðingjans til London....það hlýtur bara að veta, ég hef aldrei fengið surprise partí, og ég veit að þetta er mómentið mitt, ég finn það þegar ég ligg á maganum.

Það er gott að vera kominn aftur. Ég hlakka til að hitta alla aftur og tala íslensku og bresku, amerísk menning er soldið spes, svo þoli ég ekki að ALLIR séu með teinabeinar tennur, það er held ég bannað að vera með skakkar tennur þarna. Þetta er svona einsog að fermast, 13 ára færðu teina.

Heyðinginn kveður

Saturday, 16 June 2007

Parlez-vous anglais???

I can no longer write in Icelandic on an english keyboard. Nothing is more annoying than "ae".

My agenda today is politics.

We are all little people who can't make a difference in the world, but we can make ourself feel better about trying. Democracy has proven itself to be ineffective due to human nature, communism would work if we found a man thinking beyond his people and himself...but communism has been slandered a dirty word along with dictatorship due to bad apples leading the role.
Protesting and fighting for what we believe in is something we should all do, but I am one of those who don't, because I don't believe that I can make a difference. Some people are shocked that I don't vote, talking about that my vote is important, well I go to the polls and turn it in blank. I don't think that a different president or senator can make my life better. They all bring something to the table and with that is just as much baggage. The politicians get far because they have pulled strings for favors and when they finally get there.....they owe someone. Thats why oil companies, McDonalds, Coke, Nike, and on and on and on and on, put their money in campaigns, so that the senator will treat them right when it's necessary. That is why they can't keep their promises and frankly.....they've been elected and won't care until the next election, when all is forgotten.

I know this isn't news for anyone, but it bothers me and I have to vent it out sometimes.

It would be interesting to be a fly on the wall listening in to all that goes on that they don't tell us...because they think it is better to not tell us. Welllllllll maybe it is, what do I know-----Right???

Anyway.....Things here are fine I guess. I need to get back out to the job market and do my 9-5 shifts to come home and be tired and complain about my miserable life, thinking how great it would be if I could buy this and that. So I hope I never achieve that........my life wouldn't feel as good if I can't complain. I can only be happy in mediocre and trying to reach somewhere.

Maybe I will keep writing in english==who knows.......
Until then,
Au revoir
The Atheist

Monday, 4 June 2007

sjónvarp

Jæja Paris Hilton er farinn í fangelsi og ég fagna því. Heimurinn er betri í dag en hann var í gær. Annars var ég að horfa á MTV movie awards í gær og þar var gert grín að henni og hún var þar. Þegar það var skotið á hana, þá fóru kamerurnar beint á hana---hún var ekki sátt....mér leið svo vel að sjá það. (er ég slæm manneskja að segja það?).

Annars var Titanic í sjónvarpinu í gær, sem er fínasta mynd en alltaf þegar þetta hlev. lag með Celine Dion kom á fóninn þá skipti ég. Leo DiCaprio hefur átt soldið erfitt líf, hann var fatlaður, dópisti, lést í Titanic, lést í Departed, alvarlega geðsjúkur í The Aviator, yfir sig ástfanginn af Júlíu og dó fyrir framan hana, alvarlega geðsjúkur í The Beach eftir að hann varð einfari, osvf. uppáhalds leikarinn minn samt sem áður

Eitt sem fer hvað mest í taugarnar á mér í sjónvarpi er þegar fólk spólar til baka og fer ALLTAF á ákkúrat réttan stað, yfirleitt er diktafónn við sögu og því ekki möguleiki að vita nákvæmlega hvar á að stoppa.

Gaman að segja frá því líka að Lindsay Lohan er illa farinn núna, sem er ekki gott--mér finnst hún alls ekki eins slæm og Paris Hilton....hún er bara tvítug hollywood klisja að dópa.

Sjónvarp er leiðindi en nauðsyn---

Heyðinginn kveður

Friday, 1 June 2007

Föstudagurinn fyrsti

Jæja nýr mánuður mættur eldhress með góðar fréttir í fararbroddi. Heyðinginn fékk email í nótt frá Coachella fólkinu og þeir ákváðu að bjóða Heyðingjanum og Róses aftur næsta ár....frítt. Við skildum greinilega svona rosalega mikið eftir okkur að þeir gátu ekki séð fyrir sér að halda aðra Coachella án okkar. Heyðinginn ætlar að mæta og gera allt vitlaust með látum svo að þeir bjóði manni alveg örugglega ekki frítt aftur, vil ekki sjá þetta helvíti.

Annars er Heyðinginn kominn í vinnu aftur og nóg að gera þar, hlusta hlusta og gera.

Það er alltaf sama sólin hérna og ekkert nýtt að frétta.

Heyðinginn kveður

Monday, 28 May 2007

Frettir ad vestan og austan

Enn engir islenskir stafir enn thad verdur ad hafa tad.
A fostudaginn skrapp eg til Reno ad heimsaekja fyrrverandi nagranna mina fra Virginia Beach, tad var hrunid i thad a fostudaginn og svo forum vid a Lake Tahoe (sem er jokulvatn) ad slappa af og bara sja hvad vaeri ad gerast. vatnid var isskalt en thad stoppar nattla ekki Heydingjann...thetta var einsog ad hlaupa a vegg ad hoppa uti thetta, vatnid var ca 10 gradur. svo var bara rolegheit um kveldid. I gaer var rolegheit ad mestu leyti en eg, pabbinn og elsta dottirinn forum adeins i gymmid i fotbolta og korfubolta----Heydinginn tarf ad haetta ad reykja-- Svo tok Heydinginn og mamman gott session i gaer med bjor og goda tonlist-hun er salfraedingur

Thursinn atti vaentanlega eitthvad erfitt med ad vakna i morgun og var sennilega thyrst. Frettir barust ad Thursinn og Rjetgvend (Julianna) hafi gert heidarlega tilraun til ad mala baeinn raudann. A medan brodir Thursanns Sjelfrappi (Fridjon) for a tonleika med DJ Crush, sem voru vist godir.

svo er bara meira fjolskyldulif fyrir Heydingjann i dag og aftur i raunveruleikann i fyrramalid. Thursinn, Rjetgvend, og Sjelfrappi bua i 50 fermetrum i London og hafa thad vist bara agaett.

P.S nofnin sem eru gefin her ut verda ekki breytt, ef thu hefur fengid nafn tha er thad final...hinsvegar er haegt ad bidja um nafn.

Thursday, 24 May 2007

Dagur

Dagur hleypur framhjá sívinnandi manni....hann hleypur líka framhjá mér sofandi til hádegis og drekkandi bjór í vinnuni með endalausum kaffipásum. Samt er erfitt að setjast niður og ákveða að skapa eitthvað. Sem betur fer hef ég engan áhuga á því þess vegna vil ég vera í stúdíóinu að taka upp þá sem nenna að semja.

í dag tapaði liði mitt frekar stórum leik...bömmer það

Á föstudaginn fer ég tli Reno að heimsækja fólk (er hægt að vera heims hækja?...frekar gaman að skrifa það í tölvu og segja það upphátt)---NE-WAY ég verð þar um helgina að baða mig í sól og gera ekki rass, kannski Logic hér og þar.

Eitt slæmt við Apple tölvurnar--nú er ég með iBook sem er ca 3 ára og virkar brilliant vel, nema að ég var að kaupa mér Logic Pro 7.2 og ég get ekki notað það á minni tölvu því að ný forrit virka bara á nýjasta platforminu...semsagt ég er með mac os x 10.3.9 en ég þarf 10.4, það kostar 130 dollara--sem er ekki það slæmt á þriggja ára fresti

Það er einhver Immigration Bill í gangi hérna sem á að gera það mun auðveldara að flytja til Bandaríkjanna--þvílík tímasetning fyrir kallinn segir Heyðinginn hátt og snjallt. Annars er ég alveg orðinn húkkt á því að horfa á The O´Reilly Factor á Fox News---Maðurinn er snargeðveikur...bókstaflega geðsjúkur á milli eyrnanna, einsog kannski allir sem eru undir Rupert Murdoch en hann er einstaklega sjúkur. Mæli með því, bara uppá djókið.

Shrek er fokking allstaðar---hann er í Wal Mart, McDonalds, bílatryggingum, spítala, liggur við að hann sé maðurinn sem færir hlutina þegar maður týnir einhverju. En svona eru víst Bandaríkin--ALLT STÓRT OF MIKIÐ.

Það er kominn tími fyrir vangaveltur mínar.....

ég vildi að ég ætti töfrateppi, það væri alltof sweet, setjast í indjánann með öllara og general, ekki sígó. (passar náttla ekki að reykja sígó á töfrateppi). mun meira töff að vera með krabbamein í efri vör og reyna að drekka bjór allt kvöld án þess að eitthvað leki niður.

Líka töff ef að engin í heiminum myndi þekkja mann. (taktu smá stund og ímyndaður þér það). Engin fjölskylda, svo ertu mega feiminn og getur ekki talað við ókunnuga, en þekkir engan til að kynna þig fyrir neinum. Gleymir hvað þú heitir því að þú segir aldrei nafnið þitt, svo vinnuru við að taka við kvörtunum hjá Windows þannig þú heyrir aldrei hrós eða takk eða neitt þannig. Hvar er þessi maður, Working class hero segi ég, eða bara hetja yfir höfuð.

Eða að fara alltaf þegar maður á round á barnum að kaupa bjóra fyrir þá sem vilja bjóra en ef einhver biður um t.d vodka sprite, að kaupa bara sprite. eða screwdriver , bara appelsínudjús....HAHHAHAHAA Heyðinginn er snillingur....hver á næsta round?? ég myndi hlæja alltaf þegar hann fær sér sopa.

gaman af þessu.

Heyðinginn kveður....

PS ég veit ekki af hverju það var ekki hægt að kommenta síðast

Saturday, 19 May 2007

Bandariskt

Það er líf og fjör þegar netið á það til að hverfa í nokkra daga.
Annars er búið að vera rólegt hjá mér síðustu daga, Heyðinginn fór í partí í gær í The OC og það hús var ekkert verra en þau sem voru í þættinum. Heyðinginn var klæddur einsog hann klæðir sig og Cato var svona gangsta klæddur einsog hann gerir, samt ekki ýkt útgáfa af gangsta. NE-WAY...þá vorum við þarna og allir aðrir strákar í húsinu voru mega bandarískir, semsagt í svona aðeins víðum buxum, polo bol/bol með skólanum þeirra, og derhúfa afturábak. við vorum ekki að mingla við fólk

auglýsingar hérna eru jafn slæmar og þær eru góðar....

Fyrst ætla ég að sýna ykkur Geico bílatrygginga auglýsingu sem er afar hressandi
(talvan leyfir mér ekki að posta video-inu...veit ekki af hverju, en þið fáið bara link í staðinn)
http://youtube.com/watch?v=o5JV0Fs_GE8

Ég hringdi í stúdíó um daginn uppí LA og þeir voru jákvæðir í að fá mig í vinnu...þannig að ég held að allar leiðir liggi til LA í haust, Róses, Blúfróp, Trugull og síðan ári seinna verður Þursinn hér líka.....gaman það.

Heyðinginn kveður

Friday, 11 May 2007

Þennan Dag

Þessa daga er frekar mikil rólegheit hjá mér þar sem Cato skrapp til VA í jarðarför frænku sinnar, síðan hef ég verið einn að dútla mér í hinu og þessu. Ég hef til dæmis orðið ástfangin af Explosions in the Sky, diskurinn þeirra The Earth is Not a Cold Dead Place er magnaður...instrunmental band frá USA býst ég við, veit það samt ekki en þetta er frábært þegar maður er einn og er bara að nördast á netinu eitthvað. Svo er franska kærastan mín hún Carla Bruni búinn að framleiða kynlíf og setti það á plötu...samt notaði hún ekki kynlíf, en þegar við drengirnir heyrðum plötuna hennar á leið frá til Vegas þá var ég næstum því búinn að ráðast á næsta dýr og................

Það ætti að standa á plötunni: Carla Bruni-quelqu´un m´a dit Warning: This record should not be heard by horny people.

Allavega fór ég aðeins í sólina í gær...það er svona sundlaug hérna sem complexið deilir, lagði mig í svona klukkutíma, ekki meira, og ég er einsog Ross eftir 4 tvista að framan.....það er rönd niður með síðunni á mér. Til að toppa það þá ákvað ég að fá mér spælt egg á ristað brauð. Ekkert mál nema þegar ég set fyrsta eggið á sjóðheita pönnuna þá ræðst helvítis olían á mig og gerði allan blettóttan af brunasárum að framan.....ég er einsog blettasebratígurhestur.....með geirvörtur sjáanlegar.

Um daginn keypti ég mér Logic Pro, og sjitturinn hvað það er endalaust hægt að fikta í þessum andskota. Það eru endalausir möguleikir fyrir mann í hverju einasta helvítis drasli. Það er erfitt að byrja en um leið og maður fattar smá þá kemur þetta allt saman. Ég semsagt seldi sálina til MIDI þangað til að ég hef efni á því að reka Analog Tape Machine sem verður ekki á næstunni.

Kveð
Heyðinginn

Wednesday, 9 May 2007

RATM

jahá.......Það er ýmislegt búið að gerast hér vestan megin síðan síðast. Afsakið letina en svona er þetta bara, þetta verður sennilega löng færlsa.

Fyrsta vikan mín í San Diego var alls ekki í San Diego, 5 af 7 kvöldunum vorum við í LA, annars vorum við að nördast í Pro Tools.
Ég hef eiginlega ekkert séð af San Diego, og mér er eiginlega alveg sama....kannski seinna. (Ég deili ekki út nöfnum á Bandaríkjamenn vegna þess að það þekkir þá enginn nema ég, þeas gervinöfnum). En ég bý hjá góðvini mínum Cato sem vinnur við það að hjólabrettast. ekki slæmt líf þar á ferð.

Stuttu eftir að ég kom hingað komu tveir náfölnir túristar leitandi að hinum heimsvana Heyðingja, ég er auðvitað að tala um Róses og Drynnstá. Róses fórnaði lifrini til að keyra frá LA bara til að ná í Heyðingjann, Heyðinginn er þakklátur. Ferðinn til LA aftur byrjaði ekki vel, Róses ætlaði allan Highway-inn á móti umferð en Heyðinginn og Drynnstá mótmæltu harðlega og Róses snéri við. Þegar það var komil til LA þá fórum við að hitta Kenny, vin Heyðingjans, og duttum hressilega í það með honum og herbergis félaga hans engum öðrum en Omar Rodriguez úr Mars Volta. Daginn eftir var haldið á Coachella (ef þið vitið ekki hvað það er þá get ég ekki hjálpað ykkur því að ég er ekki viss hvort þetta er skemmtun eða fangelsi), Við vorum endalaust lengi í bíl þangað til að við komum loksins, nema hvað að þegar við komum þá voru biðraðir tli Kebabistans í að fá miðana okkar. Þannig að við fórum og hentum upp tjaldi á 15 mínútum, sem er einhverskonar met er ég viss um, og fórum svo að ná í miðana okkar.
þá fyrst erum við með reglurnar á hreinu....

1. bannað að drekka áfengi á tjaldstæði
2. bannað að vera með læti eftir 2 á tjaldstæði
3. mátt bara fara einu sinni inn á tónleikasvæði á dag, ( það virkaði semsagt þannig að maður fékk miða fyrir hvern dag og hann var skannaður....ef þig vantar peysu inní tjaldi þá ertu bara óheppinn)
4. má bara drekka bjór inní bjórtjaldi á tónleikasvæði, tvö stór bjórtjöld
5. mátt ekki vera með fána inná svæði
6. lítill bjór kostaði 7 dollara sem er slatti í USA

Annars var festivalið mjög gaman og ég hef aldrei tekið jafn mikið af minningum með mér heim, aðallega vegna skorts á áfengi. Við fundum morgunverðarborð í skugga og sátum þar frá svona 9 til 1 eða 2, kynntumst þar einhverjum mexíkönskum stelpum sem þekktu leiðina heim með rútu og við vorum mega ánægðir------smá innskot frænka Róses fór með okkur en vara bara fyrsta daginn þannig að við þurftum að redda okkur heim------allavega voru þær hessar og við bulluðum af okkur rassgatið. Ég og Róses vorum komnir með það plan fyrir að gifta okkur þar sem að við vorum báðir með konur heima, ég er auðvitað að tala um Þursann og Blúfróp (Arna), en jú við ætluðum að gifta okkur í Vegas og Heyðinginn var svo klár að Shotgun-na hlutverk húsbóndans RÚST.......við værum svo myndarlegt par. Svo var önnur hugmynd, þar sem við vorum þrír piltar í stóru tjaldi að vera með þvílík kynlífshljóð á nóttunni fyrir nágrannana því þeir vissu náttla af þrem drengjum í tjaldinu...það hefði verið of fyndið held ég.

Við misstum af megninu af föstudeginum vegna biðraða og allt það en við sáum það sem við vildum sjá, Heyðinginn sá Björk í fyrsta skiptið og hann var yfir sig hrifinn. Laugardagurinn var betri og þar sáum td Arcade Fire, KOL, The Rapture, Hot Chip, smá Fratellis, og Peter Bjorn og John voru vonbrigði og dull. þetta var einhvernveginn svona.....Annars eru engal kvöldsögur frá þessari hátíð því við gátum náttla ekki verið hauslausir. Sunnudagurinn var álíka busy, hittum hressu mexíkönsku aftur og mældum okkur mót á nokkrum tónleikum svo að við strákarnir kæmumst örugglega heim. Fyrst á dagskrá voru Explosions in the Sky sem eru magnaðir, við sáum þá á meðan við drukkum bjór í bjórtjaldinu og það var heldur betur hressandi. Þar hitttum við aftur El Trio de Mexicana og við höfðum nokkurn veginn sama prógram eftir það, svo við héldum hópinn, 3 úbermyndarlegir íslenskir karlmenn og 3 litlar burritoétandisombrerohattahafanditequiladrekkandi mexikanar. Þegar Klaxons voru á svið að leika listir sínar þá fóru þær á Placebo og Air fylgdu á eftir þeim, við ætluðum semsagt að hittast á Air þar sem það var lítið eftir til að sjá nema bara RATM. við fundum þær náttla aldrei aftur og vissum náttla ekkert hvernig við kæmumst heim. þannig að við fórum í bjórtjaldið og drukkkum þangað til að RATM byrjaði. þeir voru magnaðir skal ég segja ykkur en Arcade Fire taka gullið hjá mér, flottara show, og mun betri en þeir voru í London og líka betri lög sem þeir tóku. Eftir tónleikana héldum við uppí tjald þar sem að það var ekkert eftir af hátíðinni. Þar fórum við aðeins í fótbolta og gaman gaman nema hvað að Heyðinginn þurfti auðvitað aðeins að misstíga sig og ökklin var einn og hálfur á klukkutíma.....við héldum þá uppí tjald og hitum nágranna okkar. Viti menn hann var að fara til LA morguninn eftir og bauð okkur far í teppalögðum palli með loki, og auðvitað gerðum við það. það var helvíti hressandi, Róses hélt uppteknum hætti og tók á sig fóstursellinguna og sofnaði....drengurinn er stórfurðulegur með svefn, hann verður að hafa einhver hljóð í gangi til að sofna og svo er það fósturstellinginn. Þegar við komum til baka ( ekki til að baka samt) til LA það var það góð sturta og smá rólegheit...síðan fór frænka Róses með okkur til Santa Monicu held ég og við tjékkuðum á ströndinni og svona, síðan skildi hún okkur eftir og við fórum í nokkrar búðir, en fyrst fórum við auðvitað á Hooters, svo í búðir. Á ströndinni hittum við galdrakall sem dáleiddi okkur við morgunmatinn á Coachella og hann var bara eiturhress, síðan í einni búðinni var vinur Cato að vinna sem ég vissi ekkert um og við hittum hann, furðulegar tilviljanir.....það búa 15 milljónir í LA btw.....svo var það út á barinn held ég, einhvern karóki bar þar sem Heyðinginn og Róses tóku Creep og stóðust undir nafni á laginu. svo fórum við að túristast um Hollywood og leigðum okkur bíl og svona.

Daginn eftir vorum við eitthvað að rúnta og ákváðum að heimsækja vinkonu Heyðingjans í OC, hún var eiturhress og fór með okkur á nokkra bari og voða gaman...svo auðvitað hittum við Dennis Rodman á einum barnum, hann var hress og djö er maðurinn stór. á sama bara hösslaði Drynnstá einhverja dömu og við hin 3 fórum bara að borða á IHOP sem er viðbjóður einsog allur matur hérna. Við fengum að gista hjá henni sem var mega nett, því daginn eftir fórum við að keyra um OC og Newport og sona og leigðum okkur surfbretti og wetsuit og tókum á öldunum og þær rústuðu okkur. maður náði að standa upp nokkrum sinnum en annars voru þær soldið kraftmiklar.
Síðan fórum við í Wal Mart með það hugarfar að kaupa eitthvað tilgangslaust...sem tókst, við keyptum loftriffil.

Það er enn nóg eftir og besti parturinn kemur rétt strax----

Við ákváðum að keyra til Las Vegas, sem var ekki nema svona 4 tíma í burtu....á leiðinni stoppuðum við í Death Valley til að skjóta bjórflöskur og sona, mega rednekkar og það var stuð, fórnuðum meira segjum heilum í það að hrista þær vel og svo bomba þær, damn hvað það var gaman. OG......af því að við erum á sönduðum vegi og í Death Valley þá ákvaðum við að rallýast aðeins..........EKKI GÓÐ HUGMYND, það þurfti ekki nema sona 5 mínútur þá kom smá hola í veginum og viðrústuðum vatskassanum á bílnum, þannig að við brunuðum í næsta bæ sem er Baker, California og sáum þar verkstæði. Donny Cruz hjálpaði okkur lítið en hann var magnaður rednekk, vantaði allan vinstritanngarð í hann og hann var spikfeitur. Bílaleigan gat ekki hjálpað okkur heldur þar sem að þeir vildu fara með okkur og bílinn til Ontario sem 3 og hálfan tíma í hina áttina. :Annig að við ditsuðum bílinn og húkkuðum okkur far. Án Gríns. Gekk lítið þangað til að hver annar en einhver Trukker stoppaði. hann var hress en hræddi okkur soldið vegna þess að svona byrjaði samtalið:

Trukker: so do you guys live here or are you travelling?
Piltar: Travelling
Trukker: How long did you stand out in the road trying to get a ride?
Piltar: 30 minutes
Trukker: So do you guys live here or are you travelling?
Piltar með kúkinn í buxunum: travelling

En annars var hann yndis náungi og vildi endilega póstkort frá íslandi og sona....svop lét hann líka Heyðingjann þar sem hann var frammí tala við dóttur sína á íslensku, þetta átti að vera konan hans en hún var sofandi, litla stelpan var ekki hress með þetta, soldið feiminn greyið. 2 tímum seinna vorum við að keyra hjá Vegas á Hioghway-inu og hann var að segja frá helling af dóti....en aldrei kom þetta truck stop sem hann ætlaði að henda okkur út á, panic nr. 2----við vorum að fara fram hjá Vegas með einhverjum dodgy Trukker dude. En allt kom fyrir ekki og hann stoppaði norðan við Vegas og við fórum beint á 7-11 og náðum okkur í bjór og svo beint á Comfort inn hinum meginn við götuna. Þar var átján ára stelpa að vinna og þetta var örugglega óþægilegasta moment í lífinu hennar. Við bulluðum á fullu og vorum svona í þykjustynni að reyna við hana, það var ógó fyndið.

Svo var það Taxi og beint nirá strip til að gamblera!!!! við vorum hver með budget uppá einhverja 100 dollara. það gekk vel hjá Heyðingjanum fyrst og Róses og Drynnstá duttu fljótt út, Drynnstá keypti meira og var kominn í einhverja 300 dollara mest, en labbaði í burt með 100 dollara, þetta var á Mirage í Texas Hold´em. Síðan fórum við á Ceasars Palace þar sem fórum í sama leik og lentum í leiðinlegustu dealer manneskju í geiminum. hún hirti flest allt en Heyðinginn labbaði með 50 dollara í burtu held ég. Þá sáum við rúllettu borð, Heyðinginn tók strax til og henti 20 dollurum á rauðan (liverpool auðvitað) það kom svart, svona gerðist þrisvar í röð tapaði öllu, Drynnstá setti svo tuttugu á rauða í fjórða skiptið og hann vann. síðan fengum við nýjan bjór, (frítt að drekka fyrir gamblera), sátum aðeins og þá sá ég glytta í rauðan 19, og sagði við strákana, heyég ætla að setja 20 dollara á rauðan nítján næst, gerði það og var alveg búinn að sætta mig við tap þegar kellingin segir svo....RED 19 og þá fékk ég 700 dollara útur því...cashaði út og fór á næsta bar sem var ekki á strippinu og duttum í það með Charlie the bartender...einn sá hressasti í bransanum. Mæli með að ef þið farið til vegas að fara á Jerrys Nugget, hann vinnur alltaf 10-6 um morguninn og það er ódýr bjór.
daginn eftir tók heilan dag að koma okkur úr vegas og ég nenni ekki að segja þá leiðinda sögu.

Las Vegas er ekki borg fyrir mig...of fake, fíla það ekki.

síðan núna á Laugardaginn sem var Cinco de Mayo er þjóðhátíðardagur Mexíkana, þannig að við heimsóttum íslendinga og grilluðum og drukkum nóg af bjór. Við drukkum með sálfræðingastelpu sem sagði mér að ég væri daðrari og ég ætti að passa mig að láta stelpur vita að það leiðir ekki neitt. Og hér með er ég búinn að fría mér ábyrgð. Annars fíla ég að láta sálgreina mig í glasi.....mæli með því fyrir alla.

Strákarnir kvöddu daginn eftir og ég fór aftur til San Diego þar sem ég er búinn að vera að vinna síðan.

verð duglegri héðan í frá að henda inn fréttum

Kveð. Heyðinginn

Tuesday, 17 April 2007

bjor bjor bjor

thad er frekar leidinlegt ad blogga med al ameriskt lyklabord....thess vegna er eg ad bida tangad til ad eg kemst i mina tolvu, mig vantar nebbla bandariska klo a hledsluna.

Annars hef eg fengid mer nokkra bjora, nokkur skot, og ad borda lika.

thad hefur ekki verid mikid um skandala eda einhverjar skemmtilegar uppakomur en eg kem med eina langa faerslu seinna i vikunni. og tau fa ekki nofn thvi eg hitti tau eiginlega ekkert aftur.

Heydinginn kvedur

Tuesday, 10 April 2007

Update

Berðpoff og Dulgtrúg áttu góðar stundir í London ásamt Heyðingjanum...þó þeir hafi skilið Heyðingjann eftir veikann. Það var endalaust bullað á meðan bræðurnir voru hér í heimsókn, við hittum Úganda mann sem sagðist heita Patrick Vieira svona fimm sinnum, Arsenal aðdáandi. Hann var ágætur þangað til að hann leiddi í ljós að hann væri rasisti og Mugabe stuðningsmaður.

Síðan kvaddi Heyðinginn bræðurna og tók við bróður sínum og vin hans. þeir stoppuðu stutt og biðja að heilsa.

Á morgun er síðasti dagur Heyðingjans og það er nóg fyrir hann að gera á morgun, hann man ekki hvað, en það var einhver hellingur.

það mun verða meira um þessa pósta hérna þegar ég er kominn til USA....og myndir og eitthvað. sjáum til

kveð London og alla evrópsku vini mína

Bless í bili
Heyðinginn

Wednesday, 4 April 2007

My first....part 2

Síðan hélt ég bara áfram að drekka.

kláraði ekki High School í USA, kláraði ekki stúdent á Íslandi....en svo kláraði ég SAE í London.

Heyðinginn eignaðist sitt fyrsta fyrirtæki 19 ára...seldi það svo 18 mánuðum seinna.

Heyðinginn kynntist Þursanum á Íslandi, sú var heppinn þar.

Heyðinginn flutti til London með Þursanum 2005.

Heyðinginn keypti sér íbúð í London til að styrkja undir þennan frábæra kapitalisma sem ríður vestræna heiminum í þessum töluðu orðum.

Heyðinginn er staddur heima hjá sér.........










Annars er það í fréttum að Berðpoff og Dulgtrúg eru í heimsókn með fjölskyldunni. þeir eru eiturhressir...

ég fer til USA eftir viku.......

erfitt allt þetta stóra í lífinu :/

Wednesday, 28 March 2007

My first....

Heyðinginn kom í heiminn 27. des 1983.

Heyðinginn byrjaði að labba 10 mánaða, við misgóðan árangur vegna offitu.

Heyðinginn byrjaði að blaðra á svipuðum tíma...held ég.

Heyðinginn fór á hjól með hjálpardekkjum ca þriggja ára, þau voru tekinn af einhverntímann seinna.

Heyðinginn grét sjaldan því hann var yfirleitt með munnin fullan af mat.

Heyðinginn varð töffari níu ára þegar eignaðist fyrstu kellinguna handleggsbrotinn. Við vorum ekki alveg á sama stað í lífinu og því gekk það ekki sem skildi.

Heyðinginn eignaðist svo helling af öðrum dömum sem allar voru ágætar.

Heyðinginn fékk sínar fyrstu skopparabuxur í 17, Bungee Boys eða eitthvað þannig, kom sér vel fyrir öll diskóinn í Tónabæ...sem var aðal höstlarastaðurin. Prodigy í botni, þristur og kók með lakkrísröri.

Heyðinginn fékk sitt fyrsta fjallahjól 10 ára....Mongoose Threshold---meganett

Heyðinginn var rekinn úr myndmennt í Álftamýrarskóla og settur inná blindradeild að teikna 12 ára gamall, þar var Bortalli líka. (fórum í gegnum flest svona skemmtilegheit saman)

Heyðinginn fékk sinn fyrsta bíl 17 ára, Dodge Challenger 1973 módel. frekar töff gaur þar á ferð.

Heyðinginn klessti hann lítillega stuttu seinna þegar hann missti stjórn á afturendanum í beygju (gaf í botn í miðri beygju) og bombaði einhvern helvítis póstkassa 3 metra uppí loftið og það lenti á húddinu. en það var ekkert svakalegt, fyndið í retrospect.

Heyðinginn fékk sér sinn fyrsta bjór ca 15 ára í partíi hjá Önnu Láru, Bortalli sá fyrir kallinum þar, og mitt fyrsta Jagermaster staup fylgdi fljótt á eftir.

Heyðinginn reykti sína fyrstu sígarettu 16 ára...fiktandi á fylleríum, Marlboro Menthol eða Newport.

Heyðinginn skrópaði í fyrsta tímanum sínum 16 ára, hann kyssti stelpu sem var frátekinn af frekar stórum gaur sem frétti svo af því. Hann fór krókaleið í tímann sinn þegar allt í einu er hann þar að tala við stelpuna sem ég kyssti. sá ætlaði að lúskra á mér, en ég var klókur og slapp og drullaði mér bara á Wendy´s, fékk mér sjeik og sígó....frekar töff gaur þar á ferð.

Heyðinginn fór í blackout fyrst þegar hann drakk heila Jagermaster flösku á 20 mínútum(stóra flösku) og heyrði sögur daginn eftir sem voru frekar sjabbí.

to be continued...

Monday, 26 March 2007

Fjör--

Þetta var lífleg helgi hjá Heyðingjanum og félögum. Á föstudaginn fóru Heyðinginn, Þursinn, Klúgfrón, Mesatgríg, Mútgrefur, Svasnoppa (Sigrún hans Klúgfróns), og Rófklerfa (Ýmir) í bíó á hina mögnuðu mynd 300. Þessi mynd var svaðalega flott og þetta var á tímabili einsog ljósmyndasýning því myndatakan og filterarnir í linsunni voru alltof flottir. Þursinn og Svasnoppa voru bara nokkuð sáttar meirasegja.

Laugardagurinn kom án boðs og tróð sér inn til mín með sólskinið í fararbroddi og dónalega sagði mér að drulla mér frammúr. Seinna þann dag fóru Heyðinginn og Þursinn í LBC með öllum sem voru í bíóinu nema Rófklerfa, borðuðum ágætis baguette og héldum svo af stað á Borough market. Fengum okkur kaffi og brownie. Við skiptum síðan í lið, 3 að versla fyrir pulsupartí og 3 að gera sig reddí (eða svo héldum við 3 (Heyðinginn, Þursinn og Mesatgríg)). Leiðangurinn byrjaði og við röltum í átt að strætó og biðum þar prúðlega, á meðan töluðum við og blöðruðum útí eitt. þegar við komum úr strætó styttum við okkur leið í gegnum kirkjugarð og viti menn--ekkert gerðist. Héldum áfram leið okkar úr kirkjugarðinum þegar ég lít til vinstri á Mesatgríg til að segja eflaust eitthvað fyndið þegar ég sé glitta í gráan jakka fyrir aftan mig, og eitthvað kannaðist ég við hann. Þannig að ég leit aftur fyrir mig...þá hafði Mútgrefur elt okkur frá Borough Market í strætó, úr strætó og allt það drasl. Frekar fyndið svona dæmi. við höfðum ekki grænan að það væri verið að elta okkur, sem sýnir hvað maður getur verið grænn.
Þegar heim er komið þá er tekið svakalegt gítarsession með Mesatgríg á strengjum á meðan Mútgrefur og Heyðinginn spóka sig á raddböndunum, aðallega fóru fram Neon Biblían og The Bends. Seinna meir komu svo Klúgrón og Svasnoppa með remúlaði og sinnep í pokahorninu sem skemmti mér mjög. Við biðum aðeins eftir Bístróp og Fúntsépa og síðan voru konurnar sendar í eldhúsið að eleda fyrir duglegu kallana. Pulsurnar voru góðar. Fleiri komu í heimsókn, Heyðinginn rústaði Fifa mótinu sem Mútgrefur og Klúgfrón tóku þátt í--átti eftir að koma mér í vond mál að fara illa með Klúgfrón. Síðan fór fólkið heim að sofa, sumir af vild, flestar ekki!!

Sunnudagurinn var brögðóttur. Þar sem ég fékk mér bara nokkra létta kveldið áður var ekkert mál að vakna og fara í bolta klukkan 11, nema hvað að klukkan 10 hringir Klúgfrón og minnir mig á það að klukkan er búinn að breytast, ég er of seinn. en ég kem skömmu síðar og þá er liði mitt 5-3 undir...erum altaf undir 2 mörkum þangað til við hrökkvumí fluggírinn og skorum 5 í röð, við unnum svo 15-12 eða eitthvað. Klúgfrón var ekki með mér í liði og reyndi að ökklabrjóta mig þegar hans lið var komið undir, Mútgrefur talaði full mikið við sjálfan sig og Bístrópur var bara léttur í skapinu. þeir töpuðu allir. síðan fór ég bara heim og gerði ekki sjitt.

í dag kemur vinur minn.

kveð
Heyðinginn

Thursday, 22 March 2007

Hvað nú?

Jæja.....

Það gerist lítið þessa dagana í herbúðum Heyðingjans, Bortalli farinn og Þursinn stanslaust í skólanum.

Það er nú samt margt á döfinni--
Um helgina verður Miro í bænum, hann verður sennilega á einhverju festivali...svo hitti ég hann eftir það. Svo er fyrsta árlega Pylsuveisla Þráinns Kletts á Bunhill Row. jebb á laugardaginn kl 19 verður þessi magnaða skemmtun og þeir sem eru boðnir mega telja sig heppna...mjög heppna. Væri nú samt alveg til í annan LBC um morguninn á laugardaginn, það var magnað síðast.

Svo vonast ég eftir að vera edrú á laugardaginn til þess að mæta í fótbolta á sunnudag. Síðustu helgina í mars er örugglega eitthvað að gerast sem ég er búinn að gleyma. svo á mánudaginn kemur 2. apríl þá koma Berðpoff og Dulgtrúg og fjölskylda þeirra, það ætti að vera hressandi. Ég er ekki búinn að ákveða ennþá en annaðhvort síðustu helgina í mars eða fyrstu helgina í apríl verð ég með kveðjupartíið mitt....því ég er að fara til AUS(stafarugl, getiði nú)

[söngur]-- Max Power, he's the man who's name you'd love to touch!
But you mustn't touch!
His name sounds good in your ear,
but when you say it, you mustn't fear!
'Cause his name can be said by anyone!--[söngur endar]

Þetta er eitt besta lag sem ég veit um.

Látum þetta gott heita í dag.

kv
Heyðinginn

Sunday, 18 March 2007

Árás Bortalla á London

Jújú, Bortalli kom til London að heimsækja Heyðingjann, líka Þursahakkið en aðallega Heyðingjann. Hann mætti eldhress með gleyminn selfossing í eftirdraginu að nafni Méfsnugg (Elli J). Þannig að Heyðinginn og Mútgrefur sóttu þá á Liverpool St. og byrjuðu á tveimur ferskum kollum.

Heyðinginn og Bortalli kvöddu hressu strákana og fóru heim með draslið og fóru að luncha á The Reliance, fínasti matur. síðan fórum við bara heim og hlustuðum á The Arcade Fire og drukkum bjór, því að við vorum með miða að sjá þessa hljómsveit spila í Brixton. Við drukkum og hlustuðum og svo hringdu Mútgrefur og Méfsnugg og vildu vera memm. Við fórum allir á tónleikana og fleiri bættust í hópinn, Þursinn, Klúgfrón, og Mesatgríg. Þetta voru geðveikir tónleikar, ég var á rassgatinu...Bortalli var á rassgatinu. Eftir tónleikana fórum við heim, Dominos á leiðinni og allir hressir. Óskar drapst um leið og við komum heim. Þannig að Heyðinginn og Þursinn gerðu heiðarlega tilraun til að borða þetta, sem við gerðum.

Föstudagurinn var dugnaður ársins. Við fórum út á Tottenham Court Rd. og löbbuðum í áttina að Leicester Square en tókum óvæntan krók niður á Piccadilly. WOW algjörir flipparar hér á ferð (eruði kannski að hugsa) svo fórum við bara að skoða það þegar við allt í einu ákveðum að fara að sjá Big Ben. Við setjum vinstri fram fyrir hægri og löbbuðum af stað niðureftir og stoppuðum á National Gallery eða eitthvað á Trafalgar sq og það var mega sega nett. (ég dýrka Monet). og áfram héldum við svo og hittum hressa kalla í myndastyttuleik, sumir svindluðu og sátu á hesti, fórum fram hjá Downing st þar sem Blair félagi er, hann bað bara að heilsa--var ekkert heilsa uppá okkur. Og áfram galloppaði teymið niður á Thames til að sjá Big Ben og þar birtist hann hægt og rólega...svo rosa hratt. klukkan var 14:55. Bortalli tók mynd og aðra og hrindgi svo í Baldvin og Móður sína í rauðum símaklefa á meðan ég tók myndir af honum--flottar myndir þar. Önnur skyndiákvörðun leiddi okkur til Buckingham Palace. Fórum fyrst í gegnum St. James´ Park og gerðum grín af öndunum, þeim til mikillar gremju. Drottingin var víst eitthvað þunn eftir tónleikana í gær og kom ekkert út til að labba með köttinn, svo góðir voru tónleikarnir að ég er viss um að hún hafi verið þarna og þetta var henni til heiðurs. Eftir það löbbuðum við uppá Oxford st og löbbuðum framhjá öllum búðunum, nema búðinni sem selur ávaxta smoothi-a. Gott stuff þar á ferð. fórum svo í Virgin á endanum á Oxford niður á Sound Stage og fiktuðum vel í öllum græjunum og plönuðum framtið post lottó vinning. Heim við fórum og drukkum þangað til að við nenntum ekki að drekka meira því við þurftum að vakna snemma. Þannig að við fórum heim kl 2 og Þursinn hélt áfram....erum í lyftunni á 4 hæð þegar ég tek lyklanna up missi þá svo í gólfið...nema að þeir fara aldrei í gólfið heldur í litla bilið á milli lyftunnar og gólfsins og alla leið niður til Ástralíu sennilega, og við þurftum að fara og ná í Þursa lykla.

Laugardagurinn (þetta er líka langur dagur)...fórum á Euston kl 8 um morguninn til að fara til Manchester að sjá fótboltaleik.vorum mættir rúmlega 8 og förum í hraðbankann að taka út pening....þá er pin númerið hjá Bortalla vitlaust og ekkert gekk. Við hringjum í Visa og þeir þurfa að fá fax frá honum með kennitölu og undirskrift...gangi okkur vel á Euston....fórum í information og þeir sögðu okkur frá Ibis business center rétt hjá. Við hlaupum því að við eigum lest eftir 20 mínútur, finnum þetta Ibis og tölum við þessa indælis stelpu sem reddaði okkur algjörlega. svo kom símtal með pin númeri og allt í góðu. hann tók út pening og ég keypti samlokur, og við höfðum 2 mínútur til að klóra okkur á ýmsum stöðum.
Erum rólegir í lestinni og leggjum okkur í smástund...svo kem ég með bjór og við drekkum hann eldhressir. síðan fer ég að hugsa....hey---ég þarf að tala við gaurinn og hitta hann uppá miðana okkar...en ég er ekki með inneign (kláraðist á Visa) og síminn hans Bortalls virkaði ekki vegna þess að hann missti hann þegar hann hringdi félaga sinn á miðjum tónleikum kvöldið áður...við klórum okkur meir og förum svo í þumalputtastríð. Ekkert gátum við gert í þessu, síðan hringir Mesatgríg (miðareddarinn) og er með einhverjar áhyggjur því miðagaurinn var búinn að hringja í hann 2x...Mesatgríg reddar-einsog alltaf...hann er reddarinn. við komum loksins loksins til Manchester kl 11:47 (leikurinn byrjaði kl 12:45) og ég kaupi inneign og hringi strax í kauða og skil náttla ekki orð nema að ég ætti að hitta hann hjá Old Trafford. Við reddum okkur í lestina og erum þar með einhvern flóðhest með kvef ofan í okkur, síðan komum við út og eltum hópinn og ég hringi í hann til að fá nákvæmar upplýsingar um hitting. alltaf sagði ég ok en skildi ekkert, ég þurfti að hringja aftur svona 3x. Þetta reddaðist einsog það gerist alltaf. sáum þennan fína leik sem Man Utd unnu Bortalls til mikillar ánægju, en ég er ekki Man Utd maður þannig að ég var bara neutral...en aðdáendurnir eru með góðan húmor og tóku eitt lag fyrir mig sem fór einhvern veginn svona----We won it 2 times, We won it 2 tiiiiiimmmmesss in Vietnam, We won it two times. þeir sögðu reyndar ekki vietnam en ég man ekkert alveg hvernig þetta var. Leikurinn endaði 4-1 og við tókum einhverjar myndir og bla bla blablablablabalbalbalbablablabl.... síðan var það heimferðin. Við löbbuðum til baka í lestina þegar þessi gigantíska biðröð blasti við okkur. og Heyðinginn segir: (Heyðinginn er mega gáfaður sko) HEY!!! förum í lestina í hina áttina eina stöð og svo í skiptum við bara um átt!!! Bortall var heldur betur ánægður með að þurfa ekki að bíða í roki og rigningu, nema þá var þetta biðröð í miðasöluna og biðröðin í lestina var 6x meiri. HAHAHAHAHAHAHHHHAA hlógu Heyðinginn og Bortalli í kór. Heyðinginn kemur með aðra hugmynd, löbbum bara í áttina að lestarstöðinni (aðalstöðinni) og finnum leigubíl. það gekk eftir 20 mínútna labb. og við á lestarstööina gríðar sáttir með að vera komnir borðuðum KFC og tókum síðan 16:40 lestina heim. fengum fín sæti með fótboltabullum í vagni og það var visst skemmtiatriði að hlusta á þá, einn var á perunni en drakk samt alla leiðinna og það varð bara erfiðara að skilja hann, hann var ekkert að fara deyja. síðan drepst einn fyrir aftan okkur og byrjar að hrjóta þvílíkt, sem er allt í lagi þangað til ppprrrummmmppp hátt og snjallt. Heyðnginn og Bortalli dóu úr hlátri og enginn annar hló, og þá pppppppppppppprrrrrrrrrrrrruuuuuuuuuuuuuuuuummmmmmmmmmmmmpppppppppp ennþá lengra prump...það tók okkur alveg útaf laginu og við öskruðum úr hlátri og okkur verkjaði í magann þegar þriðja prumpið kom, hálftíma seinna kláraði hann fjórða og síðasta, svona nett hátt og ákveðið prump. Loksins loksins komum við í London og erum náttla lyklalausir og ákveðum þá að hitta Lykla-Þursa og Fúntsépa á local pöbbinum því það er smá tími í þær. síðan förum við heim og drekkum bjór og voða gaman. Ákveðum síðan að hringja í teymið og hitta alla á Old Street í djamminu. Mútgrefur, Klúgfrón, Mesatgríg, Méfsnugg, og tvær vinkonur Mesatgrígs komu með í ævintýrið. Kvartetinn byrjaði á Legion þangað til að teymið myndi koma, skemmtum okkar mjög vel og dansarnir sem voru teknir þarna voru engu líkir og fólk vildi helst ekki sjá þetta. síðan kom teymið og við tjúttum aðeins á Legion en ákveðum síðan að fara bara á 333 þar sem barinn er opinn í 10 mínútur í vipbót en það er opið til 4...gott business plan. Við bombum okkur inn og Mesatgríg kaupir hálfan barinn... og við drekkum hann. Á 333 voru dansrnir aðeins þróaðari í vængefnleika og er ég viss um að við tókum óvart einhvern dans til að kalla fram snjó, því það sjóaði daginn eftir, eftir 15 stiga heita viku.
HIGHLIGHTS Á 333 OG REST KVÖLDSINS
#Múfsnugg var bolaður af Heyðingjanum--með hjálp Mesatgrígs og Mútgrefs.
#Mútgrefur og Þursinn fóru í ballet lyftingar.
#Það var spurt hvort við ættum fleiri pillur einsog við hefðum tekið
#Það var engin úr öðru teymi nálægt okkur, við áttum austur hluta mið hæðarinnar
#Heyðinginn og Bortalli fóru í hanaslag við Múfsnugg(hann er 190+cm) öskrandi nýyrði einsog nééé og nééékkk
#Franskur maður vildi stinga Múfsnugg vegna lélegrar kímnigáfu en hætti við þegar hann fattaði að við vorum 10 íslendingar á móti einum frakka með engan hníf.
#Laxabeyglan á móti 333 og svefn.

Sunnudagur (ekki eins tíðindamikill og hinir ég lofa)......það var vaknað við mikla hlökkun í mér að fara að fá mér besta hamborgara í geimi...1001 borgarinn í Spitalfields. borðuðum hann við undirleik Edith Piaf sem var enn betra. fórum í fínar second hand búðir og Spitalfields markaðinn. fengum okkur kaffi og bla bla bla. síðum kíktum við í British Museum sem er flott bygging, og sáum flott dótarí þar. borðuðum í rólegheitum á Bella Italia og enduðum daginn/kvöldið/ferðina hans Bortalls að spila Popppúnkt og leyfa honum að vinna...gestrisnin í hámarki hér á bæ.
Hann er allavega ávallt velkomin aftur. Takk fyrir komuna.

kveð
Heyðinginn

Tuesday, 13 March 2007

flytjum alla annað: part 2

þið sem ekki vitið þá var bloggið mitt bilað á íslandi og ég hennti þess vegna inn gamalli færlsu nýlega en setti hana inn einsog það hefði verið nýtt.

hérna kemur seinni parturinn.

ég skildi við ykkur á sunnudegi. Það átti að vera fiskur en við slepptum því vegna þess að mamma var ógeðslega þunn, hún var enn uppí rúmi um 2 leytið, og nei mamma þetta var ekki matareitrun...þú varst greinilega bara alveg á skallanum. NE-WAY, það var pezza, eldsmiðjan--þunnbotna...slef....hún var góð. svo var ég bara rólegur á mánudeginum, hékk semsagt heima og boraði í nýjar holur á líkamanum mínum.

Þriðjudagurinn fór í það að redda pappírum og einhverju rusli því að ég þurfti visa til Bandaríkjanna sem var nú ástæðan fyrir heimför minni. Viðtalið átti að vera á miðvikudeginum en einhver breytti miðvikudögum í fimmtudaga og það var á fimmtudegi.

þannig að það var gaman, annars á þriðjudaginn var fótboltaleikur, ég mælti mér mót við Berðpoff (Jóa), við ætluðum að horfa á leikinn heima hjá Dulgtrúg (Kolli), bróður Berðpoff. Nema hvað, helv. Digital Ísland koxaði á 2 mínútna fresti og við sáum ekki nema helminginn af leiknum. Heyðinginn og Berðpoff brunuðu því til Róses og horfðum á restina þar, og allt endaði vel.

Miðvikudagurinn var eitthvað dapur, allavega man ég ekki mikið eftir honum, Heyðinginn horfði á annan fótboltaleik heima hjá Róses og fór síðan bara heim.
Síðan skein fimmtudagur og ég vaknaði og fór í þetta blessaða viðtal á síðasta deginum mínum á Íslandi. Fyrir þetta hafði ég farið niðrí sýslumann í HFJ (sveit), og reynta að redda öðrum passa til að komast heim daginn eftir. það kostaði slatta, og það endaði þannig að ég átti að fara bara með 2 passamyndir með mér á Leifstöð og fá bara tímabundinn passa, fínt. NE-WAY...viðtalið hófst, svo endaði það. Ég vann, og fékka að sækja passan minn samdægurs...svo alvarlegur var munurinn á spyrjenda og svarmanni...þetta var skömmustulegt. Það kvöld var kvatt með pool móti heima með Jétróm (Robbi) og Drynnstá (Einari). Drynnstá tapaði...frekar jafnt hjá Heyðingjanum og Jétróm.
Föstudagur kom og ég hvarf einsog Britney Spears í meðferð.

Næsta efni::::: London

Það tók bara róleg helgi við, föstudagur var nokkrar kollur og matur heima hjá systur Heyðingjanns og kærasta hennar. Heyðinginn og Þursinn lögðu í töskur og ráku rollurnar suður í Borough. Fúntsépi (Brynja) og Bístópur (Hreiðar) tóku vel á móti með Fajitas og við komum með ölið. Drukkum og kíktum svo á localinn í fleiri kollur, fínasta rólega kveld það.

Laugardagurinn var öllu æstari, við fengum boð í LBC (London Brunch Club) sem inniheldur kaffi á einhverjum stað þar sem maður þarf að skrifa nafnið niður til að muna það, og svo einhver Brownie sem var hin fínasta. Í þessum klúbb eru semsagt, Mútgrefur (Gummi), Klúgfrón (Óli) þeir stofnuðu klúbbin held ég, síðan var Mesatgríg (Höddi), svo var auðvitað Heyðinginn, Þursinn, Fúntsepi, og Bístrópur. þetta var voða gott allt saman. síðan fórum við bara á næsta pöbb og drukkum stanslausttil 18 þegar Fúntsépi og Bístrópur þurftu að kveðja því að þau voru að fara út að borða í tilefni afmæli Bístróps. Við héldum áfram að drekka þangað til að við vorum kölluð í kökur til afmælisdrengsins. Þá mundum við að við höfðum ekkert borðað þannig að við stoppuðum á hinum fína pezzustað rétta hjá London Bridge, þar var einn afar hress ungur strákur með date, þau voru svona 10 ára...hann er hetjan mín. Við röltum síðan áfram í afmælið og þar er bara fjölskylda mætt, hjón (held ég) og lítil 14 mánaða telpa, afar sæt sú. Við drukkum held ég endalaust og Heyðinginn og Klúgfrón tóku algjölega yfir tónlistinni og voru í eigin heimi, Þursinn sofnaði á sófanum.

Við komum heim um 4 og fórum að sofa....daginn eftir fór Heyðinginn í fótbolta og hann hefur aldrei spilað svona illa...hrikalegt. svo var bara rólegheit heima fyrir.

síðan á sunnudag hef ég ekkert gert nema tekið til og hangið heima til að nördast á netinu. er samt að fara hreyfa mig aftur eftir skelfingarnar á sunnudeginum.

Hinsvegar gleymdi ég að segja frá því að skólinn minn lét mig vita að ég hefði náð, vúhú...er þá með Diplomu í Audio Engineering. gott það, síðan fékk ég auðvitað visan og var að panta mér flug í dag til USA. fer þá út 11. Apríl til Baltimore, fer svo í viku til VA Beach og síðan til San Diegoí 2 mánuði. kem aftur 24.júní.

Sunday, 4 March 2007

Flytjum alla annað

Já, þetta er bara mín skoðun.

Ísland er ekki lengur skemmtilegt land og allir mínir vinir eiga bara
að flytja í burtu. Svo verður náttla bara heimsókn af og til til
íslands.

ég kom hingað til íslands þann 25. feb minnir mig og það er alltaf
gaman að heimsækja vini og ættingja, en svo er það bara alveg nóg.
Pylsa og sund, nokkrar matarkörfur og þá er ég búin að gera allt sem
mig langar til að gera.

Síðan ég kom hef ég sofið heima hjá mér tvisvar, þrisvar hjá Róses og
einu sinni hjá Bortalla (Óskari), svo mikil skemmtun hefur átt sér
stað.
Miðvikudagurinn (fyrsti dagurinn) var að sjálfsögðu bara rólegur,
nokkrir öllarar og family guy.
Fimmtudagurinn var mikið stúss og eitthvað þannig drasl, nema að um
kveldið var haldið pool mót þar sem Faðir minn er kominn með pool borð
í kjallarann. Róses, Trugull (Siggi), Ylfingur (Jón Bjarki), og
breskur vinur þeirra Jordan (hann heitir Jordan og ég kýs að breyta
því ekki). Þannig að Róses, Trugull, Ylfingurinn, Jordan, og
Heyðinginn fóru í pool mót og enginn vann, þetta varð bara
fylleríis-vitleysa þar sem Slots, Tuborg og Glenfiddich réðu lögum.
Við spiluðum helling og drukkum ennþá meira, töluðum heilmikið um
efnahagsvandamálin í Kambódíu og vanþróun grafískrar hönnunar á
textílum og mosaic í Indónesíu. Útlitið er svart þar skal ég segja
ykkur. S+iðun þökkuðu þeir pent fyrir sig og kvöddu Heyðingjann.

Föstudagur var öllu furðulegri... ég vaknaði hjá Bortalli og hann var
akkúrat að koma ú vinnuni og við spiluðum Fifa 07 til um fimmleytið
með litlum pásum, semi þunnur en smá votur af hressleika leiddi mig út
um kveldið og ég rak hundasleðann úr Garðabænum til Hringbrautar, þar
sem Róses, Trugull, Ylfingurinn, og kærasta hans Zagúnd (Ingrid..hún
er sænsk og fær því svona geimveru nafn, einsog allir útlendingar munu
fá) búa. Við drukkum bjór mikinn á hringbraut og sungum dátt og
snjallt. Fórum þaðan á Kaffibarinn í fría búsið og drukkum af okkur
rassgatið. (því miður komust Ylfingurinn og Zagúnd ekki með í þessa
hópferð), en hann Lerta (Steinþór) kom í staðinn. Í einhverju
brjálæðiskast byrjaði svo kaffibarinn að rukka fyrir drykkina og við
urðum brjálaðir, kláruðum drykkin og Heyðinginn og Róses þökkuðu pent
fyrir sig og fóru í sund.
Vesturbæjarlauginn var stefnan og hún bjóst greinilega við okkur, það
voru háar girðingar og gaddavír, en við hermennirnir létum þetta ekki
stöðva okkur og drápum okkur næstum því. En þetta hófst og við fórum í
heita pottin í góðan hálftíma, borguðum náttla ekki fyrir því að við
erum þannig gaurar. Komum heim á Hringbrautina snemma og horfðum á smá
tv og sofnuðum.

Laugardagur var slappur á nánast allan hátt. Versta við þennan dag var
að Liv-Man Utd var frestað og fór því ekki fram, ég endurtek að það
var engin leikur. þannig að ég fór bara samt í þetta fótboltapartí í
foreldra húsum Bortalls og fengum rækjusalat og brauð, voða fínt það.
Eftir það fórum við á búllu rétt hjá sem kallast Klassík og sátum yfir
rólegri kollu. Stuttu seinna sótti Róses mig og við fórum að drekka
meira og hlusta á Incubus þar sem við fengum frímiða á þá tónleika.
Tónleikarnir voru ekkert frábærir en allt í lagi. Tóku ekkert fyrir
okkur eldra fólkið á tónleikunum, annars eru þetta vel spilandi
strákar og myndarsöngvari. Með Heyðingjanum voru Róses, Trugull,
Lerta, og Klóde (Valli). Síðan var það afmælisveisla við heilsuðum þar
fallegu fólki en Heyðinginn og Róses stoppuðu stutt og vildu fara á
heimaslóðir og bæta upp fyrir slappa tónleika með plötum á borð við
The Bends, Neon Bible, S.C.I.E.N.C.E, og eitthvað meira. Drukkum þar
bjór og viskí og fórm síðan í hinn magnaða bæ. Hann var glataður og er
ekki frásögufærandi á þessum vefmiðli. heim og sofið

Í dag er sunnudagur og hann er sá fínasti og rólegi. fiskur í matinn á eftir.

ég man ekki hvernig íslands ferðin byrjaði, og pool mótið var ekki á
miðvikudegi en ég man ekkert eftir þessum dögum, samt var ég alveg
edrú. en helgin er í réttri röð, en þetta var sirka svona.

Kveð Heyðinginn.

P.S. vegna erfiðleika að fylgjast með öllum nöfnum þá er nafnalisti
vinstra meginn.

Tuesday, 20 February 2007

Tómlist

Flestir sem þekkja Heyðingjann vita nú að Tónlist er stór partur af honum og hans lífi. Það sem er skemmtilegt við tónlist er að það eru allir með góðan tónlistarsmekk, það er erfitt að viðurkenna tónlist annarra, t.d úntja úntja tónlist. Allavega er ég ennþá í dag að leita að þeirri manneskju sem segist vera með lélegan tónlistarsmekk, væri gaman að tala við hann/hana um tónlist.

Það er líka skemmtileg tilhugsun hvað maður treður tónlistarsmekk sínum uppá aðra, t.d:
Veistu hver ______________ er? Þú verður að tjekka á því, það er frábært.
Sem er alveg gott og gilt þegar maður uppgötvar eitthvað nýtt, en í svona 99% tilfella tjekka ég ekki á því sem mér er sagt að tjekka á því, vegna þess að annað hvort:
A. Við töluðum um tónlist full/ir og ég man ekkert hvað hljómsveitin heitir.
B. Ég stórefa að við fílum sömu hlutina.
C. Mér finnst manneskjan leiðinleg og hef ekki áhuga á að hafa sama tónlistarsmekk og leiðinleg manneskja.

En sem betur fer er til milljón mismunandi tegundir af tónlist í dag og ég segi bara skál við því.

Ef þið vitið um eitthvað sem þið haldið að ég fíli endilega látið í ykkur heyra því ég er alltaf opinn.....næstum alltaf.

Þessa dagana er bara ein hljómsveit hjá mér, The Arcade Fire með nýja diskinn sinn Neon Bible, hann er með þeim betri sem ég hef heyrt, öll lögin eru góð. Ef ég byrja að tala um eitthvað lag við vini mína sem fíla hann líka, þá byrjum við að tala um amk 4-5 önnur lög.

Heyðinginn kveður

Sunday, 18 February 2007

Franslandsfarandiferðalangar

Á miðvikudaginn var heyðinginn voða grand á því og bauð Þursanum til Parísar.

Við gistum hjá vinkonu Þursans, henni Sodda (Snjólaugu). Komum eldhress klukkan hálf tíu um morguninn við hressar móttökur frá Sodda. Hentum helvítis töskurusladrasli af okkur og fórum á verslunargötuna að skoða. Heyðinginn hélt uppteknum hætti í lífinu og fékk sér bjór þegar það var sest á kaffihús, Þursarusl og Soddarusl fengu sér kaffi....síðan hálfa hvítvínsflösku. góður bjór þangað til að ég leit á reikninginn.BJÓRINN KOSTAÐI 9 EVRUR!!!!! fyrir ykkur sem er ekki eins heimsvanir og Heyðinginn þá er það umþ 800 Krónur.

Skoðuðum síðan mýrina (samkynhneigða hverfið) og gerðum eitthvað sniðugt.

Fimmtudagurinn var tekinn í túristafíling. Louvre er flott safn og frekar stórt EN...ég fíla ekki öll þessi málverk um trúnna og þeim sem því tengist. Sá náttla Monu Lisu og svo var eitthvað annað flott málverk þarna þar sem tveir gamlir perrar eru að reyna nauðga einhverri Súsönnu, hún var víst alveg að biðja um það. Venus de Milo var náttla sexy einsog allir vita, annars var þetta bara flott og gott.
Sigurboginn var næstur á dagskrá og ég RÚSTAÐI honum, hann var flottur og góður en átti ekkert í mig. við sátum og horfðum á hann í smástund þegar Þursinn kom með þá skemmtilegu spurningu:
Þursi: Eru þetta kuðungar á trjánum??
Heyðinn hló og sagði nei, en vissi samt sem áður ekki hvað þetta væri bara eitthvað hangandi dras á trénu. En kuðungar voru þetta ekki.
Síðan datt Þursinn hreinlega bara í það og auðvitað var Heyðinginn og Soddinn ekki langt á eftir. Löbbbuðum sppá Montmartre sem er flott kirkja með fólki sem nýtir sér heimska túrista, það vorum við ekki. við kunnum á öll lúmsku brögðinn sem þeir reyna og rúmlega það. samt flott útsýni frá kirkjunni yfir borgina á kvöldin.

Föstudagurinn var hressandi, byrjuðum á Eiffel turninum og það tók sinn tíma en mjög flott útsýni og bara mega nett eitthvað. síðan Keypti heyðinginn sér buxur með gítarnaglarvasa, hversu töff er það, nú get ég talað við 15 ára stelpur fullur sjálfstrausts í þeirri lygi að ég sé í hljómsveit!! og við fórum á þvílíkt kojufyllerí. Sögur herma að Heyðinginn hafi verið í hálftíma að klæða sig úr nýju fínu buxunum og datt tvisvar á leiðinni á klósettið.

Á laugardaginn var bara semi rólegt, fórum í H&M sem var ógeðslegt og allt var troðið allstaðar í kringum það. síðan var sest á kaffihús og ég fékk mér ommilettu sem var ógó góð. Við gerðum okkur reddí til að fara í eitthvað tískulistapartí og ég sló í gegn hjá þeim sem muna eftir mér ennþá núna. Getta (Erna Bergmann) var partíhaldarinn ásamt 6 öðrum kvensufyrirbærum...hressandi fólk þar á ferð, Takk fyrir mig stelpur og Getta.

Sunnudagurinn var samloka og sofandi að pakka, ferðast og koma heim til að miðla reynslu minni til mín.

Heyðinginn Kveður

Monday, 12 February 2007

Happy mondays

Mánudagur er oft sunnudagsþynnka....sunnudögum er maður þunnur og sér eftir því að hafa drukkið of mikið, og borðar drasl mat og myglar í sófa..oft þarf mánudag til að sjá eftir þeim sunnudegi.

En þetta er ekki tilfellið hjá Heyðingjanum og Þursaruslinu, ég segi það því hún dottar hérna við hliðina á mér. En á föstudaginn fórum við í rólegan bjór sem endaði með ofurölvun og Trivial Pursuit í Finsbury Park, Þursinn fór heim snemma útaf veikindum. Á laugardaginn vorum við dugleg...

Ég á við það vandamál að stríða að ég get ekki farið í göngutúr ef það er engin stefna...Þursinn vildi fara í göngutúr á laugardaginn....
Heyðinginn: Ok, hvert eigum við að fara?
Þursinn: Bara í göngutúr
Heyðinginn: Til hvers? getum við ekki allavega sagt að við séum að fara niðrí bæ og kaupa okkur ís og labbað til baka?

Við enduðum á því að labba í 8 mínútur til Marks og Spencer í hverfinu og kaupa í matinn og svo heim aftur. Það eiga allir við sína einhverfu að stríða.

Sunnudagurinn fór í það að skoða 60´s föt í V&A Museum, þar föttuðum við að þessi tími átti betur við okkur, vera rúmlega tvítugur 1969...það er draumurinn.
Eftir það var stefnan sett á Harrods, höfðum aldrei farið inní Harrods áður, flott verslun en ekkert sniðugt að segja frá henni.
við komum heim og Þursinn bakaði skinku og ostahorn, síðan varð skinkan búinn og Heyðinginn stakk uppá ananas...miklu betra en upprunalega draslið sem er bara old news í dag.

Ég býst við tíðindalitlum dögum framundan...engin fóbolti, engin vinna, enginn skóli, bara framtíðarhugsanir og þannig.

Hvernig ætli það sé að vinna sem uppfinningarmaður? Dagurinn er pottþétt geðveikt skemmtilegur, og hvar er hægt að læra svoleiðis?
Ég myndi finna upp hugmyndarann!!!! Á leiðindar eftirmiðdegi um helgi eða fríviku eða eitthvað geturu spurt hugmyndarann: Ó vitri Heyðingi, (sem uppfinningin mun heita), hvað er hægt að gera í (borg) á þessum degi?
Hann mundi hugsa aðeins og sýna þér brot úr Family Guy á meðan og síðan: (í guðlegri rödd) Heimsku mannverur það er helling að gera, þið getið farið í dýragarðinn.
þá segið þið: en við eigum engan pening vitri Heyðingi.
Heyðingi: þá getiði tekið dýnuna af rúminu ykkar og rent ykkar niður stigaganginn á henni.

Allavega mundi ég kaupa þetta tæki!!

Tuesday, 6 February 2007

Úlfur Úlfur

Heyðinginn og Rósi fóru í leiðangur til Hammersmith, það var spenna í loftinu og í miðri ferð misstum við mann. Herði Loga verður sárt saknað...

Við stoppuðum á The Trout á leiðinni, þar komu Brynja og Magga til sögunnar, bjór var drukkin og Þursinn mætti stuttu seinna. Því næst gengum við inn og fengum okkur annan öl.

Við fengum okkur sæti og þá byrjuðu Wolfmother að spila::::::::::::::::


Eitt af fyrri lögum þeirra þetta kveld: Where Eagles have been


Þetta var síðasta lagið þeirra: Colossal God


Þetta var megasúperbónuslag: Communication Breakdown (Led Zeppelin cover)


Þetta voru vægast sagt magnaðir tónleikar...komu mjög mikið á óvart.
Undanfarið hef ekki getað hugsað um annað en að ég sé að fara á Coachella að sjá Rage Against The Machine. En 5 mínútum fyrir tónleikana var kominn spenningur og þeir voru geðveikir. Ef þið hafið séns að sjá þetta þá mæli ég með því!!!

Annars biður Heyðinginn að heilsa...

Monday, 5 February 2007

Það sem aldrei var

Superbowl er í gangi og ég hef ekkert að segja um það.

Heyðinginn og Rósi(Steini) eru komnir með þemu hérna í London....á hverjum degi um fimmleytið segjum við "förum í Camden á morgun bara".
Þorrablótið var rosa fínt og við drukkum öl með ekki ómerkilegri mönnum en Robba Chronic, rap guð íslands, hann kom vel á óvart í hressleikanum. Rósi heillaði óvart 2 ára strák í stað tvítugar stelpu...hann fékk bækling um að vera Au Pair eftir það.

Laugardagurinn var öllu hressari, vöknuðum FYRIR hádegi og fórum á Gunmakers að horfa á fótbolta...Rósi fattaði að Visa stal peningonum hans og hann er blankur einsog Heyðinginn...EEEEEEEENNN kallarnar komu með plan!!!!!

við keyptum lottó miða......

fórum heim og reyndum að redda peningamálunum hans Rósa en það endaði með því að Rósamamma kom og bjargaði helginni fyrir öllum. Þannig að við drukkum smá bjór heima og Heyðinginn rústaði Rósa í Fifa.
Það var dregið í lottói klukkan átta, potturinn var 7,7m pund sem er tæpur milljarður þannig að við ákvaðum að skipta þessu 50-50 ef annar hvor vinnur. Auðvitað byrjuðum við svo að eyða ófengnum pening og það var mjög gaman....á einhvern furðulæegan hátt reiknuðum við að vinningslíkurnar okkar væru 1 á móti 3. Við keyptum 5 línur hvor og svo erum við tveir í þokkabót, upphaflega voru líkurnar 1 á móti 14milljónum. Segið svo að stærðfræði sé tilgangslaus.

VIÐ UNNUM Í LOTTÓI!!!! OG EYDDUM ÖLLU Í BJÓR Á HVERFISBARNUM. Tíu pundinn voru fljót að fara. miði Heyðingjans var með 3 rétta.

borðuðum á Wagamama sem var gott. fórum síðan á The Reliance og drukkum bjór með skotum þar sem einn var kýldur til blóðs af vinkonu sinni.
Þursanum var meinaður aðgangur þar sem hún fór heim á milli Wagamama og The Reliance að skipta um bol og þá hættu þeir að hleypa inn þegar hún kom. Þursinn fór að sofa.
Rósi kom þeirri sögu af stað hann sé trommarinn í Sigur Rós sem veitti aðdáunar einnar dömu og hún bað okkur að koma með þeim á einhvern Electro stað í Kings Cross.

Rósi fékk að ráða og ákvað að skella sér, við hinsvegar biðum eftir Miro og fórum svo, þannig að við þurftum að hitta þau á staðnum. Við mættum svo með glósticks og glimmer og viti menn...þetta er stærsti staður í London, við hittum heilladísina hans Rósa aldrei og enduðum í Jungle herbergi staðsins.

Einhvernveginn komumst við heim í strætó og Heyðinginn rústaði Rósa í Fifa áður enn þeir sofnuðu.

Gerðum ekki rassgat í dag!

Lottóvinningsheyðinginn kveður í bili
Helgi

Friday, 2 February 2007

Things to do in London

Það er föstudagur og Steini kom í heimsókn í gær, í London er hægt að gera ýmislegt.
Það er hægt að fara í Camden town, fara niðrí bæ, Big ben, London Eye, Imax 3D, skoða nýja Arsenal völlinn.

Steini kom semsagt í gær og við fórum í matarboð hjá Yoko fyrrverandi bekkjasystur minni, og ég skildi Þursann eftir heima. Það komu 3 úr bekknum, kennarinn og svo ég og Steini....svo var reyndar Yuki meðleigjandi Yoko þarna. Við duttum hressilega í það, hlustum á Fake Plastic Trees 3x á korteri og ég var ber að ofan á tímabili.
Þursinn leigði sér Lindsay Lohan mynd með systur Heyðingjans, mér, og borðaði endalaust nammi, það var víst rosa gaman líka.

Við fórum frammúr klukkan 15 í dag og gerðum ekkert að ofantöldu, það var ekkert plan heldur. núna horfum við á Anchorman í 8. skiptið og borðum pizzu....frumlegt og gott frí fyrir Steina. En ég held að hann sé alveg sáttur.

Í kvöld gerum við ekkert af þessu, nema kannski að bjórinnn leiði okkur til Camden Town.
Steini er sofnaður.........af ég væri ekki heima hjá mér myndi ég klína pizzu sneið framan í hann og hlægja duglega. HAHAHAHA

UPPFÆRT---við förum í þorramat í kvöld, allt að gerast meðan maður reynir að nördast á netinu. Mig grunar sterklega að það verður drukkið í kvöld og þá er ég ekki að meina léttmjólk.

ég ætla að halda áfram að skemmta gestinum mínum og gera mig sætan fyrir kvöldið.

Kveð
Heyðinginn

Wednesday, 31 January 2007

Ég gefst upp

Eftir mikið tuð og vesen í Elvu Rut (sjá mynd 1),
Photobucket - Video and Image Hosting
ákvað ég, Helgi (sjá mynd 2)
Photobucket - Video and Image Hosting
að gefast upp og byrja að skrifa blogg fyrir fólkið heima til að lesa (líka af því að hún samþykkti að elda og vaska upp). Það sem er skrifað hér endurspeglar engan vegin mínar skoðanir þar sem hún ritskoðar allt og vill að ég breyti hinu og þessu vegna þess að henni finnst hún oft koma út eisog vitleysingi, hálfviti eða eitthvað annað. T.d þá kom ég með hugmynd að skíra bloggið "örlagabyttur" en þá helfur hún að fólk heldur að hún sé feit. Því var breytt

Annars verður þetta bara eitthvað á léttum nótunum ......

UPPFÆRT------Ég fæ ritfrelsi...
þá ætla ég að byrja á því að finna nýtt nafn á Elvu, uppástungur eru velkomnar. Ekkert gaman að segja stanslaust ég og elva gerðum þetta eða hitt. Faðir hennar hefur kallað hana Rudda, eða Uffe Eleman Jensen núna í lengri tíma en ég vil fá eitthvað ferskt þó svo að þessi séu auðvitað frábær.
ég er frekar hlynntur að kalla hana Þursa einsog þursi.
Elva=Þursi
nema þið finnið eitthvað betra.

Næsta mál- ég veit ekki hvað það er.....ég er frekar ómálefnalegur

Allavega er ekkert að frétta, ég er atvinnulaus óstudent í London og rétt braðum verð ég samvaxin sófanum á rassinum. ÉG er samt með nokkur járn í eldinum og þegar þau skýrast þá læt ég ykkur vita á þessum netmiðli.
Þursi er í Bird College að læra dans, leiklist og söng, ef þið viljið ráða hana í veislur, barnaafmæli, eða skátasamkomur hafið þá samaband við mig og við finnum eitthvað gott verð.

Þorsteinn Magnússon kemur í heimsókn á morgun og við ætlum að fá okkur bjór og fara að sjá Wolfmother leika listir sína í Hammersmith Apollo á mánudaginn. þar fáum við okkur líka bjór.
jæja þetta er orðið gott í bili......ég ætla að kveðja á meðan Peter, Born og John á fóninum spilandi fyrir unga fólkið hið frábæra lag-----Young folks.

Kveð
Helgi