Tuesday, 6 February 2007

Úlfur Úlfur

Heyðinginn og Rósi fóru í leiðangur til Hammersmith, það var spenna í loftinu og í miðri ferð misstum við mann. Herði Loga verður sárt saknað...

Við stoppuðum á The Trout á leiðinni, þar komu Brynja og Magga til sögunnar, bjór var drukkin og Þursinn mætti stuttu seinna. Því næst gengum við inn og fengum okkur annan öl.

Við fengum okkur sæti og þá byrjuðu Wolfmother að spila::::::::::::::::


Eitt af fyrri lögum þeirra þetta kveld: Where Eagles have been


Þetta var síðasta lagið þeirra: Colossal God


Þetta var megasúperbónuslag: Communication Breakdown (Led Zeppelin cover)


Þetta voru vægast sagt magnaðir tónleikar...komu mjög mikið á óvart.
Undanfarið hef ekki getað hugsað um annað en að ég sé að fara á Coachella að sjá Rage Against The Machine. En 5 mínútum fyrir tónleikana var kominn spenningur og þeir voru geðveikir. Ef þið hafið séns að sjá þetta þá mæli ég með því!!!

Annars biður Heyðinginn að heilsa...

3 comments:

Unknown said...

Sagðir þú RAGE AGAINST THE MACHINE !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
??????????????????????????????????

Heyðingi said...

já rage against the machine spila á coachella í lok apríl....sögur segja að þeir ætli að túra eitthvað en þetta eru einu staðfestu tónleikarnir

Unknown said...

O M F G

Mikil tíðindi !