Monday, 26 March 2007

Fjör--

Þetta var lífleg helgi hjá Heyðingjanum og félögum. Á föstudaginn fóru Heyðinginn, Þursinn, Klúgfrón, Mesatgríg, Mútgrefur, Svasnoppa (Sigrún hans Klúgfróns), og Rófklerfa (Ýmir) í bíó á hina mögnuðu mynd 300. Þessi mynd var svaðalega flott og þetta var á tímabili einsog ljósmyndasýning því myndatakan og filterarnir í linsunni voru alltof flottir. Þursinn og Svasnoppa voru bara nokkuð sáttar meirasegja.

Laugardagurinn kom án boðs og tróð sér inn til mín með sólskinið í fararbroddi og dónalega sagði mér að drulla mér frammúr. Seinna þann dag fóru Heyðinginn og Þursinn í LBC með öllum sem voru í bíóinu nema Rófklerfa, borðuðum ágætis baguette og héldum svo af stað á Borough market. Fengum okkur kaffi og brownie. Við skiptum síðan í lið, 3 að versla fyrir pulsupartí og 3 að gera sig reddí (eða svo héldum við 3 (Heyðinginn, Þursinn og Mesatgríg)). Leiðangurinn byrjaði og við röltum í átt að strætó og biðum þar prúðlega, á meðan töluðum við og blöðruðum útí eitt. þegar við komum úr strætó styttum við okkur leið í gegnum kirkjugarð og viti menn--ekkert gerðist. Héldum áfram leið okkar úr kirkjugarðinum þegar ég lít til vinstri á Mesatgríg til að segja eflaust eitthvað fyndið þegar ég sé glitta í gráan jakka fyrir aftan mig, og eitthvað kannaðist ég við hann. Þannig að ég leit aftur fyrir mig...þá hafði Mútgrefur elt okkur frá Borough Market í strætó, úr strætó og allt það drasl. Frekar fyndið svona dæmi. við höfðum ekki grænan að það væri verið að elta okkur, sem sýnir hvað maður getur verið grænn.
Þegar heim er komið þá er tekið svakalegt gítarsession með Mesatgríg á strengjum á meðan Mútgrefur og Heyðinginn spóka sig á raddböndunum, aðallega fóru fram Neon Biblían og The Bends. Seinna meir komu svo Klúgrón og Svasnoppa með remúlaði og sinnep í pokahorninu sem skemmti mér mjög. Við biðum aðeins eftir Bístróp og Fúntsépa og síðan voru konurnar sendar í eldhúsið að eleda fyrir duglegu kallana. Pulsurnar voru góðar. Fleiri komu í heimsókn, Heyðinginn rústaði Fifa mótinu sem Mútgrefur og Klúgfrón tóku þátt í--átti eftir að koma mér í vond mál að fara illa með Klúgfrón. Síðan fór fólkið heim að sofa, sumir af vild, flestar ekki!!

Sunnudagurinn var brögðóttur. Þar sem ég fékk mér bara nokkra létta kveldið áður var ekkert mál að vakna og fara í bolta klukkan 11, nema hvað að klukkan 10 hringir Klúgfrón og minnir mig á það að klukkan er búinn að breytast, ég er of seinn. en ég kem skömmu síðar og þá er liði mitt 5-3 undir...erum altaf undir 2 mörkum þangað til við hrökkvumí fluggírinn og skorum 5 í röð, við unnum svo 15-12 eða eitthvað. Klúgfrón var ekki með mér í liði og reyndi að ökklabrjóta mig þegar hans lið var komið undir, Mútgrefur talaði full mikið við sjálfan sig og Bístrópur var bara léttur í skapinu. þeir töpuðu allir. síðan fór ég bara heim og gerði ekki sjitt.

í dag kemur vinur minn.

kveð
Heyðinginn

No comments: