þið sem ekki vitið þá var bloggið mitt bilað á íslandi og ég hennti þess vegna inn gamalli færlsu nýlega en setti hana inn einsog það hefði verið nýtt.
hérna kemur seinni parturinn.
ég skildi við ykkur á sunnudegi. Það átti að vera fiskur en við slepptum því vegna þess að mamma var ógeðslega þunn, hún var enn uppí rúmi um 2 leytið, og nei mamma þetta var ekki matareitrun...þú varst greinilega bara alveg á skallanum. NE-WAY, það var pezza, eldsmiðjan--þunnbotna...slef....hún var góð. svo var ég bara rólegur á mánudeginum, hékk semsagt heima og boraði í nýjar holur á líkamanum mínum.
Þriðjudagurinn fór í það að redda pappírum og einhverju rusli því að ég þurfti visa til Bandaríkjanna sem var nú ástæðan fyrir heimför minni. Viðtalið átti að vera á miðvikudeginum en einhver breytti miðvikudögum í fimmtudaga og það var á fimmtudegi.
þannig að það var gaman, annars á þriðjudaginn var fótboltaleikur, ég mælti mér mót við Berðpoff (Jóa), við ætluðum að horfa á leikinn heima hjá Dulgtrúg (Kolli), bróður Berðpoff. Nema hvað, helv. Digital Ísland koxaði á 2 mínútna fresti og við sáum ekki nema helminginn af leiknum. Heyðinginn og Berðpoff brunuðu því til Róses og horfðum á restina þar, og allt endaði vel.
Miðvikudagurinn var eitthvað dapur, allavega man ég ekki mikið eftir honum, Heyðinginn horfði á annan fótboltaleik heima hjá Róses og fór síðan bara heim.
Síðan skein fimmtudagur og ég vaknaði og fór í þetta blessaða viðtal á síðasta deginum mínum á Íslandi. Fyrir þetta hafði ég farið niðrí sýslumann í HFJ (sveit), og reynta að redda öðrum passa til að komast heim daginn eftir. það kostaði slatta, og það endaði þannig að ég átti að fara bara með 2 passamyndir með mér á Leifstöð og fá bara tímabundinn passa, fínt. NE-WAY...viðtalið hófst, svo endaði það. Ég vann, og fékka að sækja passan minn samdægurs...svo alvarlegur var munurinn á spyrjenda og svarmanni...þetta var skömmustulegt. Það kvöld var kvatt með pool móti heima með Jétróm (Robbi) og Drynnstá (Einari). Drynnstá tapaði...frekar jafnt hjá Heyðingjanum og Jétróm.
Föstudagur kom og ég hvarf einsog Britney Spears í meðferð.
Næsta efni::::: London
Það tók bara róleg helgi við, föstudagur var nokkrar kollur og matur heima hjá systur Heyðingjanns og kærasta hennar. Heyðinginn og Þursinn lögðu í töskur og ráku rollurnar suður í Borough. Fúntsépi (Brynja) og Bístópur (Hreiðar) tóku vel á móti með Fajitas og við komum með ölið. Drukkum og kíktum svo á localinn í fleiri kollur, fínasta rólega kveld það.
Laugardagurinn var öllu æstari, við fengum boð í LBC (London Brunch Club) sem inniheldur kaffi á einhverjum stað þar sem maður þarf að skrifa nafnið niður til að muna það, og svo einhver Brownie sem var hin fínasta. Í þessum klúbb eru semsagt, Mútgrefur (Gummi), Klúgfrón (Óli) þeir stofnuðu klúbbin held ég, síðan var Mesatgríg (Höddi), svo var auðvitað Heyðinginn, Þursinn, Fúntsepi, og Bístrópur. þetta var voða gott allt saman. síðan fórum við bara á næsta pöbb og drukkum stanslausttil 18 þegar Fúntsépi og Bístrópur þurftu að kveðja því að þau voru að fara út að borða í tilefni afmæli Bístróps. Við héldum áfram að drekka þangað til að við vorum kölluð í kökur til afmælisdrengsins. Þá mundum við að við höfðum ekkert borðað þannig að við stoppuðum á hinum fína pezzustað rétta hjá London Bridge, þar var einn afar hress ungur strákur með date, þau voru svona 10 ára...hann er hetjan mín. Við röltum síðan áfram í afmælið og þar er bara fjölskylda mætt, hjón (held ég) og lítil 14 mánaða telpa, afar sæt sú. Við drukkum held ég endalaust og Heyðinginn og Klúgfrón tóku algjölega yfir tónlistinni og voru í eigin heimi, Þursinn sofnaði á sófanum.
Við komum heim um 4 og fórum að sofa....daginn eftir fór Heyðinginn í fótbolta og hann hefur aldrei spilað svona illa...hrikalegt. svo var bara rólegheit heima fyrir.
síðan á sunnudag hef ég ekkert gert nema tekið til og hangið heima til að nördast á netinu. er samt að fara hreyfa mig aftur eftir skelfingarnar á sunnudeginum.
Hinsvegar gleymdi ég að segja frá því að skólinn minn lét mig vita að ég hefði náð, vúhú...er þá með Diplomu í Audio Engineering. gott það, síðan fékk ég auðvitað visan og var að panta mér flug í dag til USA. fer þá út 11. Apríl til Baltimore, fer svo í viku til VA Beach og síðan til San Diegoí 2 mánuði. kem aftur 24.júní.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
9 comments:
Til hamingju með Díplómuna Helgi minn... Og djöfull er ég ánægður með nafnið mitt :) Þú ert mergjaður að búa til nöfn. En ég sé þig í London í apríl, það verður gaman hjá okkur þá. Því mun ég spá og við förum á krá og fáum okkur í tá :)
já....til er ég
já hugmyndaríkur þessi, ég hljóma samt eins og einhver sýking...já ég er með fúntsepa...úúú æjjj haha
Má ég vera með...???
:/
já, þú ert neð
Afhverju fékkst þú að vera Heyðinginn?
af því að ég er guð hérna inni, og mér fannst það passa vel að kalla guð heyðingja.
er ég ritskoðaður !
Post a Comment