Thursday, 22 March 2007

Hvað nú?

Jæja.....

Það gerist lítið þessa dagana í herbúðum Heyðingjans, Bortalli farinn og Þursinn stanslaust í skólanum.

Það er nú samt margt á döfinni--
Um helgina verður Miro í bænum, hann verður sennilega á einhverju festivali...svo hitti ég hann eftir það. Svo er fyrsta árlega Pylsuveisla Þráinns Kletts á Bunhill Row. jebb á laugardaginn kl 19 verður þessi magnaða skemmtun og þeir sem eru boðnir mega telja sig heppna...mjög heppna. Væri nú samt alveg til í annan LBC um morguninn á laugardaginn, það var magnað síðast.

Svo vonast ég eftir að vera edrú á laugardaginn til þess að mæta í fótbolta á sunnudag. Síðustu helgina í mars er örugglega eitthvað að gerast sem ég er búinn að gleyma. svo á mánudaginn kemur 2. apríl þá koma Berðpoff og Dulgtrúg og fjölskylda þeirra, það ætti að vera hressandi. Ég er ekki búinn að ákveða ennþá en annaðhvort síðustu helgina í mars eða fyrstu helgina í apríl verð ég með kveðjupartíið mitt....því ég er að fara til AUS(stafarugl, getiði nú)

[söngur]-- Max Power, he's the man who's name you'd love to touch!
But you mustn't touch!
His name sounds good in your ear,
but when you say it, you mustn't fear!
'Cause his name can be said by anyone!--[söngur endar]

Þetta er eitt besta lag sem ég veit um.

Látum þetta gott heita í dag.

kv
Heyðinginn

4 comments:

Anonymous said...

SAU?

Heyðingi said...

ekki alveg...næstum því

Anonymous said...

Landið heitir USA og lagið er með engum öðrum en Homer J. Simpson úr þættinum þegar hann breytti nafninu sínu í Max Power...
Hvernig stóð ég mig???
Vinn ég eitthvað???
Ekki???

Heyðingi said...

jeiiii....Dulgtrúg gat. Þú vannst ferð til london. Flýgur út 2. apríl og ferð aftur til íslands 8. apríl.

Svo skal ég sýna þér Big Ben og Buckingham Palace og hvað sem er...FRÍTT.

sjáumst.