Dagur hleypur framhjá sívinnandi manni....hann hleypur líka framhjá mér sofandi til hádegis og drekkandi bjór í vinnuni með endalausum kaffipásum. Samt er erfitt að setjast niður og ákveða að skapa eitthvað. Sem betur fer hef ég engan áhuga á því þess vegna vil ég vera í stúdíóinu að taka upp þá sem nenna að semja.
í dag tapaði liði mitt frekar stórum leik...bömmer það
Á föstudaginn fer ég tli Reno að heimsækja fólk (er hægt að vera heims hækja?...frekar gaman að skrifa það í tölvu og segja það upphátt)---NE-WAY ég verð þar um helgina að baða mig í sól og gera ekki rass, kannski Logic hér og þar.
Eitt slæmt við Apple tölvurnar--nú er ég með iBook sem er ca 3 ára og virkar brilliant vel, nema að ég var að kaupa mér Logic Pro 7.2 og ég get ekki notað það á minni tölvu því að ný forrit virka bara á nýjasta platforminu...semsagt ég er með mac os x 10.3.9 en ég þarf 10.4, það kostar 130 dollara--sem er ekki það slæmt á þriggja ára fresti
Það er einhver Immigration Bill í gangi hérna sem á að gera það mun auðveldara að flytja til Bandaríkjanna--þvílík tímasetning fyrir kallinn segir Heyðinginn hátt og snjallt. Annars er ég alveg orðinn húkkt á því að horfa á The O´Reilly Factor á Fox News---Maðurinn er snargeðveikur...bókstaflega geðsjúkur á milli eyrnanna, einsog kannski allir sem eru undir Rupert Murdoch en hann er einstaklega sjúkur. Mæli með því, bara uppá djókið.
Shrek er fokking allstaðar---hann er í Wal Mart, McDonalds, bílatryggingum, spítala, liggur við að hann sé maðurinn sem færir hlutina þegar maður týnir einhverju. En svona eru víst Bandaríkin--ALLT STÓRT OF MIKIÐ.
Það er kominn tími fyrir vangaveltur mínar.....
ég vildi að ég ætti töfrateppi, það væri alltof sweet, setjast í indjánann með öllara og general, ekki sígó. (passar náttla ekki að reykja sígó á töfrateppi). mun meira töff að vera með krabbamein í efri vör og reyna að drekka bjór allt kvöld án þess að eitthvað leki niður.
Líka töff ef að engin í heiminum myndi þekkja mann. (taktu smá stund og ímyndaður þér það). Engin fjölskylda, svo ertu mega feiminn og getur ekki talað við ókunnuga, en þekkir engan til að kynna þig fyrir neinum. Gleymir hvað þú heitir því að þú segir aldrei nafnið þitt, svo vinnuru við að taka við kvörtunum hjá Windows þannig þú heyrir aldrei hrós eða takk eða neitt þannig. Hvar er þessi maður, Working class hero segi ég, eða bara hetja yfir höfuð.
Eða að fara alltaf þegar maður á round á barnum að kaupa bjóra fyrir þá sem vilja bjóra en ef einhver biður um t.d vodka sprite, að kaupa bara sprite. eða screwdriver , bara appelsínudjús....HAHHAHAHAA Heyðinginn er snillingur....hver á næsta round?? ég myndi hlæja alltaf þegar hann fær sér sopa.
gaman af þessu.
Heyðinginn kveður....
PS ég veit ekki af hverju það var ekki hægt að kommenta síðast
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
það er eins og bandamenn séu að hlusta á okkur ! það gæti ekki hentað betur að fá þetta bill-a sill-a í gegn ...jjjjjíííííha
Mér líst vel á hugmyndina með að eiga roundið. Einnig er hægt að kaupa alltaf bjór og ef einhver biður um eitthvað annað að kaupa petobismol handa honum og gefa honum í Long drink glasi. Með sólhlíf.
Og ég ætlaði hvort eð er ekkert að kommenta í síðasta bloggi. BLÆTS!
Eg vil fa nafn a nafnalistan!
Ég vil fá nýtt nafn. Þursi er versta nafnið :/
Post a Comment