Friday, 11 May 2007

Þennan Dag

Þessa daga er frekar mikil rólegheit hjá mér þar sem Cato skrapp til VA í jarðarför frænku sinnar, síðan hef ég verið einn að dútla mér í hinu og þessu. Ég hef til dæmis orðið ástfangin af Explosions in the Sky, diskurinn þeirra The Earth is Not a Cold Dead Place er magnaður...instrunmental band frá USA býst ég við, veit það samt ekki en þetta er frábært þegar maður er einn og er bara að nördast á netinu eitthvað. Svo er franska kærastan mín hún Carla Bruni búinn að framleiða kynlíf og setti það á plötu...samt notaði hún ekki kynlíf, en þegar við drengirnir heyrðum plötuna hennar á leið frá til Vegas þá var ég næstum því búinn að ráðast á næsta dýr og................

Það ætti að standa á plötunni: Carla Bruni-quelqu´un m´a dit Warning: This record should not be heard by horny people.

Allavega fór ég aðeins í sólina í gær...það er svona sundlaug hérna sem complexið deilir, lagði mig í svona klukkutíma, ekki meira, og ég er einsog Ross eftir 4 tvista að framan.....það er rönd niður með síðunni á mér. Til að toppa það þá ákvað ég að fá mér spælt egg á ristað brauð. Ekkert mál nema þegar ég set fyrsta eggið á sjóðheita pönnuna þá ræðst helvítis olían á mig og gerði allan blettóttan af brunasárum að framan.....ég er einsog blettasebratígurhestur.....með geirvörtur sjáanlegar.

Um daginn keypti ég mér Logic Pro, og sjitturinn hvað það er endalaust hægt að fikta í þessum andskota. Það eru endalausir möguleikir fyrir mann í hverju einasta helvítis drasli. Það er erfitt að byrja en um leið og maður fattar smá þá kemur þetta allt saman. Ég semsagt seldi sálina til MIDI þangað til að ég hef efni á því að reka Analog Tape Machine sem verður ekki á næstunni.

Kveð
Heyðinginn

7 comments:

Unknown said...

lýst ekkert á þessa frönsku :/

Anonymous said...

hvað er að frétta af flutningsmálum, ég er að kanna lánamál til að komast í skólann og ef þay ganga upp þá er ég farinn !

Gummi said...

Ég gæti kennt þér hluti eða tvo um baby base tan.

Annars lýst mér vel á þetta, London er ekki söm án þess að sjá í nærbuxurnar þínar uppúr gallabuxunum. Kíki kannski heim til þín bráðum og fæ að spila í Playstation tölvunni þinni.

Og spurðu Cato hvort hann hafi Bluntslide-að "The Venice Ledge"? Ég ætla nefnilega að gera það áður en ég dey, og fara niður "Leap of Faith líka".

Bleis.

Heyðingi said...
This comment has been removed by the author.
Heyðingi said...

Cato hefur ekki Bluntslidað Venice ledge en hann ætlar að gera það fyrir þig, og þú vilt ekki gera Leap of faith. Eftir að Jaime Thomas gerði það þá hafa 2 reynt það.....Fyrsti braut Femur-inn í lærinu og hinn brotnaði á þannig að sköflunsgbeinið kom uppúr hnéinu á honum.....ég myndi krossa það af listanum þínum.

Svo er ég líka hættur að ganga í nærbuxum, en þú ert velkominn í playarann minn

Gummi said...

Point taken!

Ég finn mér önnur áhugamál þá, hefur líka alltaf langað til að búa til Excel forrit sem leysir Sudoku.

Anonymous said...

siggi er að spá í að koma líka til L.A. , ég get fengið lánið fyrir skólanum , þannig að núna þarf ég bara að klára John adams high school !!