Tuesday, 20 November 2007

Úti er ævintýri

það er margt búið að gerast.

og hérna byrjar það. Vinnan er góð, alltaf að hitta fleiri geðveika og fatta að ég verð geðveikari sjálfur með hverjum degi sem líður. Ekki einu sinni Heyðinginn er óhultur stórborgara geðsýkinni.

Síðan síðast er byrjað að leka loftið á baðherberginu, Heyðinginn ætlaði ekki að trúa því en jújú, það dropar yfir baðkarinu, smá heppni í óheppni en þó leiðinlegt. Manneskjan fyrir ofan borgar allt saman...Heyðinginn lendir bara í leiðindunum sem fylgja.

Bortalli kom og fór síðustu helgi, hann drakk, reykti, kyssti, svaf og keypti. góð helgi þar og þá sérstaklega sunnudagurinn.....bara ganni. En Bortalli stakk Heyðingjann af með Glávbúrma á Beirut á laugardaginn var. Heyðinginn hmpf-aði bara og fór heim að hitta Þursann. Þar var ákveðið að hitta Glóntrjó (Hlynur) á pöbba rölti í Camden. Svo fór að Þursinn var þreyttur og ákvað að leggja sig í hálftíma, Þursinn kom ekki meira við sögu um kveldið. En piltarnir fóru á gott pöbbarölt og buðu Bortalla og Glávbúrma velkomna að tónleikum loknum. Stoppið var stutt enda allir þreyttir raddlausir og svangir. Allavega fóru Heyðinginn og Bortalli beint á beygluna og tóku 5 laxabeyglur, eina til að borða á leiðinni og eina heima og eina fyrir sofandi Þursa.

EN HÉR KOMA FRÉTTIRNAR......HEYÐINGINN REYKIR EKKI LENGUR. og það eru 3 vikur síðan...drukkið nóg síðan þannig að, þetta er búið. HEYÐINGINN VILL FÁ HAMINGJUÓSKIR Í SKRIFLEGU FORMI SENDA Á BRESKA HEIMILISFANGIÐ.


Jólin eru að koma, og svo má ekki gleyma að nóvember er að klárast.

Þessi helgi var ansi skrítinn, Heyðinginn stoppaði ekki í korter alla helgi. Föstudagurinn var byrjaður á vinnu einsog vanalega, nema að það var hljómsveitaræfing beint eftir vinnu....jújú Heyðinginn þykist glamra á strengi, allavega þá endaði það í rólegum bjórum og heimferð um miðnætti eða eitthvað, man ekki nákvæmlega. Svo vaknar Heyðinginn á laugardegi og drífur sig í vinnuna. Þar byrjar vel, fyrsta dama fyrsta sala. vúhú, allavega endaði laugardags vinnudagur vel og þaðan var farið í afmælisboð til Fúntsépa. hún er eldri. það endaði í einhverju dansiballi á Old Street einsog vanalega. Sunnudagur byrjaði um hálf ellefu til þess að fara í fótbolta í kuldanum, Heyðinginn vann og skoraði meira segja nokkur stykki....Heyðinginn skorar aldrei í fótbolta. þaðann fóru dude-arnir beint á pöbbinn og fengu sér öl og annan. Heyðinginn hvarf svo neðanjarðar og viti menn...galdur...Síminn hringir. eitt besta móment lífsins. Heyðinginn dreif sig heim með sólheima glottið og fór í sturtu til að fríska sig fyrir spilaleikana. Arcade Fire voru nebbla að troða upp og buðu Heyðingjanum frítt á tónleikana gegn greiðslu. Þeir buðu nokkrum öðrum líka.
Alalvega var Heyðinginn að fara með Mútgref, Klúgfrón, Múfsnugg, Svasnoppa, Trónshútt (Elín), Úmgópur (Helga), en því miður komst Mesatgríg ekki. Hans var saknað. KISS KISS
Góðir Spilaleikir þessir.
Heyðinginn drakk nokkra gulllitaða og kom heim alveg búinn á því...hann eyddi mánudeginum með harðsperrur þreytu raddleysi og yfirvegun.


það er kominn myndasíða í boði El Þurso.
http://www.flickr.com/photos/passivelunatics/
við erum hér.

þangað til næst.
Heyðinginn kveður með 2 pundum á kassan og friðarmerki út.

4 comments:

Anonymous said...

hahahaha.. ógeðslega gott blogg Helgi og frábært nafn (Úmgópur). Hvar færðu hugmyndirnar af þessu helduru?

En þangað til næst, hafðu það gott og gangi þér vel með reykleysið.

Heyðingi said...

ég veit ekki hvaðan nöfnin koma. ekki sem ég þetta, Lúsí í skýjunum með demantana hjálpar. djók,
samt ekki
samt.

Anonymous said...

ég er nú þegar farinn að kæla ölið og plögga magnarann fyrir heimkomu þína !!
svo skálum við fyrir hyypia.

Heyðingi said...

OMG gott session in Arnarnesin====yeah. ég einmitt mæti með gibsonin, hlakka mikið til, byrjaður að æfa að spila með slagverki nú þegar.